|
|
|
miðvikudagur, maí 31
NÝTT BLOGG !!!!!!!!
+ Sigrun bloggaði kl. 16:05 +
~~~~~~*~~~~~~
Á maður.......... að fara að skipta yfir í bloggar.is kerfið eða 123.is ?? Eða er blogspot að gera sig?Ég geri mér fulla grein fyrir því að lúkk síðunnar er ekki uppá marga fiska.. það mál er búið að vera í process í ansi langan tíma..hef bara ekki rambað á það eina sanna ;) .. Er fólk enn að lenda í vandræðum með popup-síðuna sem var alltaf að koma hérna stundum ?Ég er búin að berjast á móti því að opna blog.central síðu því ég vil ekki vera eins og ALLIR aðrir hehe..... þannig það er þessi eða bloggar.is :D What's your flavour?
+ Sigrun bloggaði kl. 11:21 +
~~~~~~*~~~~~~
þriðjudagur, maí 30
Eigum við .......... e-ð að ræða hvað ég var ÓEÐLILEGA pirruð og í ógeðslega vondu skapi þegar ég kom úr vinnunni í gærkvöldi???Ok kannski ekki skrítið þar sem ég var búin að vinna í 15 tíma en það var, að öllu leyti frekar, manneskjunni sem ég var að vinna með að kenna..... GUÐ MINN EINI.....Við erum að tala um að hún var bara hæg, hún hjálpaði mér varla þegar kom að því að ganga frá... og svo loksins... LOKSINS .. þegar ég er búin að stimpla mig út og ætla svoleis að fokkast í burtu og helst koma þangað aldrei aftur,.... nei þá mátti ég ekki fara þar sem við urðum að fara saman út - ekki spyrja mig af hverju! - Maður myndi þá ætla að þar sem hún var að láta mig bíða eftir sér, að hún myndi þá drífa sig eeeeeeeeeeen NEI! - Hún gaf sér tíma í að dútlast við að þvo sér um hendurnar.. dytta pínupons að kaffistofunni og svo að lokum stimpla sig ofurhægt út - Ég hélt í alvöru talað að ég myndi gjörsamlega tapa mér í pirringi...... Ótrúlegt að hafa getað haldið andliti og meiraðsegja feik-brosað til að hún vissi ekki hve brjáluð ég var !!
+ Sigrun bloggaði kl. 13:43 +
~~~~~~*~~~~~~
sunnudagur, maí 28
Hvað er að.......... fólki sem skrópar í vinnunni sinni? Ég átti að vera að vinna í dag til 18 og svo átti annar strákur að mæta á sína vakt frá 18-23:30 ... haldiði að asninn bara ákveði að koma ekki og ég, sem var búin að vera að gjörsamlega telja niður mínúturnar í að hún yrði 18, þurfti að hanga þarna til að ganga 19 ... Aldrei fyrir mitt litla líf gæti ég skrópað og bara sleppt að mæta.... Svona lið er eitthvað vangefið, ég sver það !!Annars er ég engan veginn pirruð, bara skil ekki svona...Ósköp sátt við lífið og tilveruna akkúrat núna... sól úti og gott veður og gaman að vera til :DPS: 9 dagar í Portugal beibí ;)
+ Sigrun bloggaði kl. 19:20 +
~~~~~~*~~~~~~
föstudagur, maí 26
Ég og Gyða Stefanía í mjög einlægum samræðum í gær, meðan ég var að binda saman blóm fyrir hana ...Gyða: Þetta er giftingarblómÉg: Ertu að fara að gifta þig?Gyða: JáÉg: Hverjum ertu að fara að giftast?Gyða: Prinsinum mínumÉg: Hvað heitir hann?Gyða: Ég veit það ekki... ég veit ekki einu sinni hvar hann er ...Ég: jáá...Gyða: .... ég á eftir að finna hann.....Hve mikil snúlla er þetta fallega barn???
+ Sigrun bloggaði kl. 21:25 +
~~~~~~*~~~~~~
fimmtudagur, maí 25
Hvað haldiði....... annað en það að mín er búin að ná sér enn og aftur í nett kvef og ljóta hálsbólgu :( Ég er að segja ykkur það, ég fæ ekki einn mánuð án þess að verða veik,..það er bara svoleis.. Var að hugsa um daginn að núna væri maí-mánuður bara á enda og mín ekkert búin að næla sér í neitt... hvað skeður?Var aumingi í gær og hélt mig heima þar sem ég gat varla kyngt né talað.. varð skárri þegar fór að líða á daginn og var sterk og mætti með familíunni í afmælisboð til Nonna Quest.. maður varð nú að láta sig hafa að mæta þar sem hann var svo sætur að bjóða okkur hehe...Þemað var MJÖG svo spes en það var GOTH !! Ég get nú ekki sagt að við höfum gengið neitt rosalega langt þegar við vorum að dressa okkur upp en sjæsen sko.. þið verðið að kíkja á myndirnar og sjá Halldór og Nonna, þeir voru GEGGJAÐIR!!!! Svo kom vel á óvart að það voru alveg fleiri en einn og fleiri en tveir sem máluðu sig og voru flottir á því.. hehe bara gaman að því..Núna eru aðeins 12 dagar í PORTUGAL og það er sko eins gott að ég nái að losa mig við þessa andstyggðarhálsbólgu fyrir þann tíma , .. þetta á svo bókað eftir að verða geggjuð ferð!! :DPS: Ég er að vinna í að láta myndirnar inn.. og það þarf ekki passw. til að komast inná þær !
+ Sigrun bloggaði kl. 12:27 +
~~~~~~*~~~~~~
mánudagur, maí 22
Helgin var ........bara mjög skemmtileg .......Á laugardaginn fór ég að vinna frá 10-18 og var svo brunað beint heim að taka sig til í einum grænum, Hans Ingi kom svo og náði í mig og við fórum að kaupa gjöf handa henni Söndru minni, en skvízan var með útskriftarpartý, sem byrjaði reyndar um 17:30 svo við vorum svoldið vel í seinni kantinum að mæta... en mættum þó að lokum ;) .. Það var nottla endalaust stuð á allri heilu familíunni eins og alltaf þegar við komum svona öll saman og var horft á Eurovision í góðu glensi og spjallað og borðað.... Um miðnætti fórum við frændsystkinin í bæinn og var fyrsta stopp á NASA (en ekki hvar spyr ég nú bara) ... það er svo totally staðurinn til að vera á , þegar kemur að Eurovision.. snillingurinn Páll Óskar hélt uppi stuðinu eins og venjulega og var dansað og dillað sér þar í einhvern tíma... - Við urðum samt fljótt þreytt á troðningnum þarna og fórum yfir á Hverfis... - eftir á að hugsa sé ég nú eftir að hafa yfirgefið NASA því Hverfis er bara ekki nógu skemmtilegur staður, alltaf sama liðið sem maður sér þarna þó maður sé engan veginn alltaf þarna, og engan veginn skemmtileg tónlist! .. Allavega... ég get nú ekki sagt að ég hafi verið í öflugasta djammstuðinu, var meira bara þreytt og tilbúin að fara heim að lúlla mér hehe... - En við dönsuðum smá en ég bjallaði svo bara í pabba sem kom og sótti okkur um hálf3 leytið... Þá var rennt við á Devitoz og fengið sér eina eldheita (vel þegin eftir kuldaógeðið úti) .. Friends sett í tækið og svo bara rotast :)Vinna á sunnudaginn frá 12-18 og svo bara hitt og þetta þangað til ég fór að sofa um miðnætti..Djöfull var ég samt ónýt í morgun , munur að vakna og fara beint í vinnuna í staðinn fyrir að vakna,æfa og svo vinna... - planið er að kaupa kort í Laugum og fara að æfa með Írisi minni... það verður stuð ;);) Allavega gaman að prófa hvernig Laugar eru, hef aldrei æft þarÉg held þetta sé orðið alveg ágætlega langt og flott hjá mér þetta blogg hehe... Ég skelli inn myndum seinna í dag frá laugardeginum...Ble ..
+ Sigrun bloggaði kl. 14:46 +
~~~~~~*~~~~~~
föstudagur, maí 19
Trúiði því...... að það séu liðnar 4 vikur ??? Námskeiðið er semsagt búið og þarmeð 4 vikur farnar...! Skuggalegt hve tíminn líður hratt. Mér finnst samt ekkert gaman að það sé búið þar sem þetta var klikkað gaman, þetta var auðvitað puð, en þetta var þrælskemmtilegt.Nú er ég á biðlista með að kaupa kort í sömu stöðinni , en á meðan er ég að spá í að kaupa mér kort í Baðhúsinu eða e-staðar til að æfa þangað til ég fer út....Sem er annað mál - ég er ekki að trúa því að það séu bara 18 dagar í Portugal ferðina - fyrstu ferðina mína til sólarlanda takk fyrir :D .. Þetta verður án efa klikkað skemmtilegt!!! Ég á samt eftir að sakna Hans Inga míns mikið, það væri auðvitað úber nice að vera að fara með kærastanum sínum til útlanda en þetta yndi vill ekki fara til sólarlanda á sumrin og auk þess er ekkert það sama og að fara í ferð með kærastanum eins og að fara í kreisí gelluferð með stelpunum..... bæði algjört æði er ég viss um :)Fer í litun+klippingu í dag og hlakka mikið til .. komið tæpt hálft ár síðan seinast :/Svo er það vinna á helginni :'(Og svo er það útskriftarpartý hjá Söndru frænku á laugardaginn , en skvízan var að klára stúdentinn á dögunum.. svo dugleg ;);) Til hamingju sætasta ;*Back 2 Work !
+ Sigrun bloggaði kl. 11:43 +
~~~~~~*~~~~~~
fimmtudagur, maí 18
JEYYYY........ Ég náði sögunni líka!!! :D:D:DMjög sátt með að hafa verið í fullu starfi, í ræktinni á fullu síðastliðinn mánuð og ná svo 9 einingum.. gæti bara ekki verið ánægðari ! ;)
+ Sigrun bloggaði kl. 11:07 +
~~~~~~*~~~~~~
miðvikudagur, maí 17
Ég er pínu........ happy þar sem ég náði íslensku og náttúrufræði... :D Núna á ég bara eftir að fá að vita hvort ég hafi náð sögunni eða ekki.... - Þetta er samt búinn að vera ógeðslega ömurlegur morgun , þar sem stóð inná skólakerfinu að ég væri fallin í náttúrufræðinni og ég fór nottla í nettan bömmer yfir því .... - svo kemur bara í ljós að þetta var einhver villa og ég féll ekki heldur náði !! :D:D Ég var samt svo þvílíkt fúl yfir þessu að hafa "fallið" að ég sagði við sjálfa mig (og nokkra aðra) að ég ætlaði aldrei og þá meina ég ALDREI aftur í skóla á Íslandi .. haha... ótrúlega bitur :) .. En ég hugsa að það sé nú ekkert leyndarmál hvað ég er með ótrúlega mikinn skólaleiða hmmm :) ..Jæja ég ætla að halda áfram að vinna... just wanted to spread the news ;)
+ Sigrun bloggaði kl. 13:47 +
~~~~~~*~~~~~~
sunnudagur, maí 14
Þú finnur ekki........ manneskju sem þjáist af meiri einbeitingarskorti en ég !! .. Ég á svo erfitt með mig núna að það er ekkert annað en óeðlilegt! Ég er að reyna að læra undir próf sem gengur vægast sagt illa .. prófið á morgun semsagt.... - Ég er manneskja sem geri alla hluti á seinustu mínútu.. alveg ótrúlegt!!! Ætla að reyna að halda áfram ,reyna að vera dugleg þó það sé eitthvað ótrúlega tregt akkúrat núna.. - sjæsen hvað ég hlakka til þegar þetta fokkans próf er búið og ég er búin í þessum fokkans skóla á þessari fokkans önn! Þá verð ég voðalega happy :D
Nú þarf ég að fara að leita mér að nýrri stöð til að æfa í, en námskeiðið sem ég er á núna endar næsta föstudag og ég ætla að halda áfram að vera dugleg... Núna verður maður að gefa í sko .. sérstaklega áður en ég fer út.. Ég er samt mestast að hallast að því að fara að æfa í Baðhúsinu..það hljómar svo kósý eitthvað að vera bara konur .. og svo er Baðhúsið ekkert of stórt... Ef ég gæti myndi ég halda áfram á NordicaSpa því það er endalaust æðisleg stöð , en ég er ekki það rík að ég tími að henda peningunum mínum í svo rándýrt dæmi - stöðin er draumur í dós en ég tími því samt ekki!
+ Sigrun bloggaði kl. 22:57 +
~~~~~~*~~~~~~
miðvikudagur, maí 10
Djöfull er ég...... stolt af mér - þó ég segi sjálf frá hehe :)Það var nottla ræktin á mánudag og þriðjudag en svo var ég extra dugleg og dreif mig um kvöldið líka, báða dagana :D:D Fór í morgun og ætla að skella mér líka í kvöld.Ég er samt búin að vera svo vangefið þreytt í morgun að það er ekki fyndið....Óheppnin hefur líka fylgt mér allt frá í gærkvöldi...Byrjaði á því að ég gleymdi bikinítoppnum mínum í ræktinni og verð núna að bíða í nokkra daga eftir honum , þar sem þetta var bara sett í þvott og handklæðin ganga nottla fyrir..--Jæja svo voru það óhöppin í dag -Er búin að klæða mig í ræktinni og fer svo í að setja krem á mig og spreyja ilmvatninu á mig.. fer ekki betur en svo að ég spreyja í augun á mér og var það annað augað sem varð sérstaklega fyrir úðanum.. ááii.. ekkert smá vont...Svo var ég að ganga frá einhverju dóti hérna í vinnunni og næ mér í flís í hendina sem bara ætlaði ekki að fara...En svo .. svo fór ég alveg með þetta... - er að labba með sýni hérna útí hitt húsið sem ég vinn í og er að labba upp tröppur með bakkana... næ að hrasa í tröppunum fram fyrir mig .. sjáiði þetta ekki fyrir ykkur , úber hallærisleg gella... - Sem betur fer braut ég engin slys og þótt ótrúlegt sé þá náði ég ekki að slasa sjálfa mig ... Nice try though !Ætla að halda áfram að vinna núna.. þætti nú vænt um að sjá fleiri kvitt en í seinustu færslu ;);)Takk bangsarnir mínir ;**
+ Sigrun bloggaði kl. 14:31 +
~~~~~~*~~~~~~
mánudagur, maí 8
VEðrið úti...... er bara djók sko - shitturinn hvað er heitt úti.... Fram að hádegi var ég í mínum vanalegu vinnufötum sem eru þá rúllukragabolur, buxur og gammósíur innanundir (mér er alltaf svo heitt) og svo svona spítalasloppur = mjög töff í vinnunni semsagt.. - var svoleis að KAFNA úr hita þannig í hádeginu dreif ég mig heim í stuttermabol,.. allt annað líf bara :D:D .. Langar svo að vera úti að sleikja sólina akkúrat núna en ekki að vinna, en hey það eru bara nokkrar mínútur eftir af vinnudeginum svo ekki bíttar þetta miklu héðan af..Varð ekkert úr æfingaprógrammi helgarinnar þar sem opnunartíminn stangaðist akkúrat á við vinnutímann hjá mér.. en ég er mikið að spá í að fara á eftir.. sé til hvort ég nenni svo ég ætla að spara stóru orðin þangað til á morgun og láta ykkur þá vita hvort ég hafi svo nennt að mæta :)Svo er það náttúrufræðipróf á fimmtudaginn , eins gott að lesa vel svo maður falli ekki.... Er í jarðfræði og þetta er sjúkt erfitt sko.... gengur ekkert hálfkák heldur verður maður að læra eins og páfagaukur allt draslið utan að - jeyy gaman :SLater..
+ Sigrun bloggaði kl. 15:57 +
~~~~~~*~~~~~~
föstudagur, maí 5
Lífið er....... ekkert annað en æðislegt þessa dagana !!! :D:DÉg er svo stolt af mér fyrir að vera svona dugleg í ræktinni.. Við erum að tala um að núna er 2.viku af 4.vikna prógrammi lokið.. ótrúlegt hvað tíminn líður hratt... Vorum svo í mælingu í morgun og á einni viku erum við að tala um að ég er búin að léttast um 1,4 kg .. djöfull er ég illa sátt.... þetta er algjörlega skref í rétta átt..Er að vinna til 16 í dag en er svo mikið að spá í að skella mér í ræktina eftir vinnu.. Vorum í Body Balance í morgun, í fyrsta skipti, og mér finnst ég bara eilega ekkert búin að gera í dag.. maður er ekki vanur að koma öðruvísi en lafmóður útúr þessum tímum þarna svo tíminn í morgun var bara eins og eitthvað chill.. Þannig að ég held að málið sé að massa ræktina í dag og taka smá brennslu ;);)Svo er nú ekkert prógram á helgum en ég ætla sko að skella mér um helgina báða dagana og drífa mig bara um 6-7 leytið - vá ég meiraðsegja hlakka til :D:DÞessu prógrammi fylgir samt ekkert smá strangt matarprógram.. frá miðvikudegi þessarar viku og fram á næsta miðvikudag má ég ekki borða neitt hveiti.. ég er hætt að drekka kók, ég get sko alveg fullyrt að mig hefur sko virkilega langað í en ég hef ekki látið freistast, kókistinn mikli hehe, en ég lét reyndar freistast um daginn með nokkra mola af nammi en það gerist ekki aftur.. þessa dagana er mitt nammi Smoothie Skyrdrykkur , ávextir og ávaxtasafinn úr bónus .. jeyy :/ ;DJæja back to work,, góða helgi!! ;)
+ Sigrun bloggaði kl. 12:02 +
~~~~~~*~~~~~~
|
|
|
|