sunnudagur, júlí 31

...... Gwen Stefani er snillingur !!! ...
Ekki nóg með að gellan sé snillingur bara í að klæða sig, með flottan smekk, þá er hún ennþá meiri snillingur í að gera töff og vel skrifuð lög ...
Textarnir oftast algjör snilld og tónarnir í lögunum æði!!!
Mæli með að allir næli sér í nýjasta diskinn hennar . . .

Lög í uppáhaldi hjá mér:

Danger Zone
Cool
The Real Thing

- - - - - - - - - - - - - -

...... Coldplay eru líka snillingar !!! ...
Alveg síðan ég heyrði í þeim fyrst, fyrir 5 árum síðan, fílaði ég þá í tætlur ...
Lögin þeirra ná einhvern veginn alltaf til mín..textarnir og allt bara!!!
Nýjasti diskurinn þeirra er líka snilld -
Minnz er á leiðinni að kaup'ann . . .


Lög í uppáhaldi hjá mér:

Talk
Speed Of Sound
What If

- - -

+ Sigrun bloggaði kl. 19:06 +

~~~~~~*~~~~~~

laugardagur, júlí 30

Vííííí.......

Það er komið nýtt PRóF hérna neðst vinstra megin .. PRóF nr.2
Svo ég hvet alla sem lesa þetta að smella á linkinn og athuga hvað þeir vita um mig :) ....
Ég hvet líka alla til að skrifa undir réttum nöfnum - sama hvort ég þekki ykkur eða ekki , skemmtilegra þannig ! :D:D:D

+ Sigrun bloggaði kl. 19:08 +

~~~~~~*~~~~~~


Ég var .....

ógeðslega dugleg í fyrradag og bakaði súkkulaðiköku strax og ég kom heim..
ég bý by the way til rosalega góða súkkuköku.. og mamma besta súkkulaðikremið - svo þetta er killer-blanda hehe !!..
Hinsvegar er aðalmínusinn sá að þegar þessi meistarakaka er til hérna, þá ét ég helst ekkert annað - þannig að í dag hef ég ekki nærst á neinu öðru en súkkulaðiköku og mjólk - mmmmm... hollustan POTTÞÉTT í fyrirrúmi!! :/

Lenti í djöfulls veseni í gærmorgun.. vaknaði frekar snemma heima hjá Hans Inga en fór að sofa aftur, þegar systir hans skutlaði honum á flugvöllinn.. jæja.. Sigrún ákveður að vera letingi og liggja sofandi til 7:35 - fór þá á fætur og dreif mig á methraða að taka mig til og strax útí bíl - ..
Jæja.. ætla svo að starta bílnum en NEIIII - Eygló litla var rafmagnslaus :( ..
Ég ætlaði að hringja í Hans Inga en NEIIII - ég var inneignarlaus!
Ég fer og ætla uppí íbúð að hringja en NEIIII - ég er klaufi og get ekki opnað hurðina með lyklinum !! - SJÆSEN ég var orðin ekkert lítið pirruð sko ... hamaðist á hurðinni eins og fáviti og ekkert gerðist - svo þegar ég er finally búin að gefast upp og fer niður kemur Ólöf (systirin) og gat því skutlað mér !!
......
Spáið samt í'essu ... ótrúleg óheppni .. endilega á degi sem ég er stödd uppí Garðabæ - og akkúrat á þeim degi sem ég á að kaupa bakkelsi fyrir morgunkaffið... typical !!!!!

Oh well.. ætli sé ekki komið að því að hætta að tölvunördast og drulla mér að læra ... ég VERÐ að læra og klára bókina sem ég er með núna - annars verða konurnar í vinnunni ógeðslega leiðinlegar við mig á þriðjudaginn ... - það er refsingin fyrir að læra ekki - ég skipaði þeim að vera ÖMURLEGAR við mig ef ég kem ólærð ! :)
....
Svo er það Glæstar Vonir í kvöld heima hjá Írisi - og það er komin föst FLOTT ný rútína með ...... Íris gerir GEGGJAÐSLEGA gott pasta sem við borðum með !!! How wonderful life is dadadadada!!!!!!!

+ Sigrun bloggaði kl. 17:54 +

~~~~~~*~~~~~~

föstudagur, júlí 29

Á meðan ..

.. örugglega allir - eða næstum því allir eiga eftir að njóta helgarinnar í útilegum og fylleríi og örugglega svaða stuði þá er eitthvað allt annað að fara að gerast hjá mér..
Það verður heldur betur stuð á minni því núna þarf ðeg að fara að spýta í lófana og drífa af það sem ég á eftir að lesa í náminu... ef ég á eftir að ná einhverjum þessara áfanga, þá mun það kallast kraftaverk, þar sem ég er komin alveg skuggalega á eftir .. ekki gaman :/
En bara það að minn ástkæri bróðir sagði strax í byrjun að ég myndi ekki ná þessu, þá er það sko alveg nógu mikil hvatning útaf fyrir sig - svo við sjáum til hvað gerist....

Annars hef ég lítið annað að segja en bara GÓÐA HELGI til allra og skemmtið ykkur vel !!!!!!

+ Sigrun bloggaði kl. 11:48 +

~~~~~~*~~~~~~

þriðjudagur, júlí 26

Ég er ..

bilað eintak!! .. Alltaf kvefuð - alltaf með hálsbólgu - alltaf með eitthvað.... ótrúlegt vesen á einni manneskju.... - og nýjasta nýtt : augun eru farin að vera með vesen líka..... - hvað er eilega málið?
Ég fór til læknis um 10 leytið og hleypt fljótt inn ..
Þegar þangað er hinsvegar komið, er læknirinn eitthvað upptekinn í símanum og eina athyglin sem Sigrún fær, er á milli hika í símanum .. ég var ekki alveg að skilja sko ... en að lokum skellti hann á og gat sinnt mér! Fékk augndropa sem ein í vinnunni var svo nice að setja í augun og það er svona nett móða yfir augunum núna... gaman gaman !!

Hvað er málið með búðir eins og Office 1 og Griffil - búðir sem eru með skiptibókamarkað , geta ekki tekið við sumum bókum núna en það verður hægt í ágúst - djöfulinn heldur þetta fólk að ég nenni að væflast fram og tilbaka með þessar helvítis bækur ? - Og sérstaklega í ágúst - okey .. ég skal koma þegar allir menntaskólakrakkar Rvk eru að skipta sínum bókum... ARRGH!

Jæja ég held að ég segi þetta gott í bili..
Má vera að þetta sé eitthvað súr færsla en ég er nú ekkert í það súru skapi samt sem áður - liggur bara ágætlega á mér fyrir utan það að ég get varla séð hvað ég er að skrifa og fyrir utan þá staðreynd að það er glampandi sól úti og ég er inni að vinna - - en ég ætla sko pottþétt að fara í sólbað eftir vinnu .. og hver veit nema maður kíki í einhverja sundlaugina !! :D

+ Sigrun bloggaði kl. 11:51 +

~~~~~~*~~~~~~

föstudagur, júlí 22

Proffalingur !!

Ég var að fá einkunn fyrir verkefnin 3 sem ég var að skila í gær..
Það var hvorki meira né minna en A á línuna - og eitt þeirra A+ meiraðsegja :D:D Vá hvað ég er sátt !!! :D:D:D

Ég sótti Írisi frænkz eftir vinnu og skutlaði henni heim -
fór í bakaríið -
kom heim og smurði rúnstykki handa mér og mömmslu sinni..
- er komin í stuttbuxur og topp og er á leiðinni út í garð að sóla mig með mömmslu ---
Sjæsen hvað er gaman að vera til ...... Og þetta veður ... er etta djók??.. þvílíkur hiti ... þessu á maður sko að venjast!!!!!!!!

Sigrún sumarstelpa kveður .......

+ Sigrun bloggaði kl. 17:21 +

~~~~~~*~~~~~~

miðvikudagur, júlí 20

Þessi dagur ...

... er búinn að vera svo klikkað góður að ég á bara ekki til orð :D
Eftir vinnu skaust ég heim og náði í sunddótið mitt, pikkaði svo Írisi frænku upp og við brunuðum í Vesturbæjarlaugina --(ekki alveg að mínu vali, mig langaði í nýju laugina, en Íris fékk að ráða - að þessu sinni:D)-- og sólin ætlaði að fara að beila á okkur en ákvað að koma aftur :D:D

Það jafnast ekkert á við að vera nýkominn úr sundi og finna svona netta klórlykt.. namm mér finnst það æði - og ég er að mein'etta , ekkert djók ! LOVE IT!

Kom heim, settist út í smá sólbað - horfði á Wifeswap , sem er by the way bara ágætlega skemmtilegur þáttur... gaman að fylgjast með honum !!

Hringdi í Daggrós og pikkaði hana upp og við fórum á Devitos og borðuðum í bílnum.. vorum að hafa það alveg úberdúber nice og var planið nú að taka nettan Laugarveg á'ettarenna og sonna.. eeeen neiii......
..... Eygló litla Sigrúnardóttir var ekki alveg að hlýða mömmslunni sinni, ónjéé..þessi blessaða elska vildi bara ekkert fara í gang, alveg sama hvað ég reyndi að gefa henni af mjólk (a.k.a. bensín) .... - -
Þetta ævintýri endaði á að ég hringdi í pabba og komu hann og Halldór til að draga elskuna heim, en þegar það var nýbyrjað, ákvað hún að hrökklast í gang.. stórfurðulegt kvikindi....

Þannig kannski maður þurfi að fara að fjárfesta í nýjum bíl :( Æ dónt vont tú .. ég er búin að tengjast henni Eygló þéttum böndum sko.. veit ekki hvort einhver komi í staðinn :S :D:D
....
ENN pant fá rauðbleikan bíl ef ég kaupi mér nýjan - það er eina skilyrðið sem ég set !!!!!!!!

+ Sigrun bloggaði kl. 23:12 +

~~~~~~*~~~~~~


MYNDIRNAR .......

.... eru loksins komnar inn... ENJOYYYYYYYYY!!

+ Sigrun bloggaði kl. 15:17 +

~~~~~~*~~~~~~

þriðjudagur, júlí 19

Þið verðið..

.. bara að fyrirgefa en ég get því miður ekki komið myndunum inn, allavega ekki í dag.... það er alltaf eitthvað helv. vesen í tölvunni heima þannig það er enginn sjéns að ég geti plöggað þetta þar... - og svo ætlaði ég að plögga þetta hérna í vinnunni en það er einhver error á síðunni svo þetta verður bara að bíða til morguns ... arrrgh - bögg!!

+ Sigrun bloggaði kl. 15:28 +

~~~~~~*~~~~~~

mánudagur, júlí 18

Jæja...

Laugardagskvöldið var alveg rosalega skemmtilegt . . .
Fyrst fórum við Daggrós og Hildur út að borða á Sólon og höfðum það rosa nice.. mjög gaman að hittast svona allar aftur og stefnum að því að gera það núna oftar !
Svo um 22 leytið lá leiðin á Prikið þar sem útskriftarárgangur Réttó 2000 hélt Reunion og var mjög gaman að hitta allt þetta fólk aftur og líka gaman að sjá hvað allir eru eitthvað svo breyttir... suma hefur maður heldur ekki séð síðan ég veit ekki hvenær svo þetta var allt mjög gaman :D
Í endann skelltum við Hildur, Daggrós og Begga okkur á Pravda og vorum þar í stuðinu með nokkrum strákum úr Réttó ... Fórum svo á Hressó en ég stakk fljótt af og rölti upp á Devitos og svo kom minn ástkæri kærasti og sótti mig - aww hann er svo mikið gull!! *

Myndirnar koma svo vonandi inn á morgun!!! :D:D

+ Sigrun bloggaði kl. 15:16 +

~~~~~~*~~~~~~

fimmtudagur, júlí 14

Já vissuð þið........

........ að gellan sem leikur Amber í Glæstum vonum er á litla Íslandinu okkar?!?
Well ef þið vissuð það ekki fyrir þá vitiði það núna !!
Er ég sorgleg að vera spennt fyrir því?!?
Æ dónt ker !! - Ég er svo mikill aðdáandi þáttanna að auðvitað er maður spenntur!
Ég var að sjá Ísland í Bítið-þáttinn sem hún var í og þetta virkar ekkert smá skemmtileg stelpa!
Mig langar sjúklega mikið til að fara á Icelandic Fashion Week !!!!
Væri ekki leiðinlegt að sjá leikkonuna í persónu :)

Annars fór ég með Írisi eftir vinnu í kringluna sem var bara mjög gaman -
Ég keypti mér eitt skópar í einhverri búð sem ég veit ekkert hvað heitir, og missti mig svo í VERO MODA - úppsí - það var ekki alveg ætlunin að eyða 10.000 kalli but hey - shit happens - samt enginn skítur, ég er mjög sátt við þessa dásamlegu eyðslu mína - ég gæti aldrei átt of mikið af fötum.. það er ekki hægt !!!

+ Sigrun bloggaði kl. 19:44 +

~~~~~~*~~~~~~

miðvikudagur, júlí 13

Trallalla.....

Ég er eilega ekki alveg að nenna að skrifa neitt .. hmm..

ANnars er nýtt lúkk á síðuna á leiðinni... ég er komin með leið á þessu, enda hefur það ekki alveg verið að virka.. allavega ekki í minni tölvu - vantar rammann og myndina sem var fyrst - ARRGH og ég kann ekkert að lag'aða hehe..
En hvernig er hjá ykkur? Sjáiði myndina og rammann utan um allt draslið, eða er'etta bara í minni tölvu?!?

Ég á enn eftir að koma 17.júní myndunum inn :/ - Ekki alveg líkt mér, ég er svo pottþétt alltaf á þessu að koma myndunum helst inn daginn eftir að ég tek myndir!
En svona er'etta...
Myndirnar koma inn á morgun - ÉG LOFA !!

Ég heimta að allir sem lesa þetta blogg, skrifi allavega eitt lítið comment hérna, ég vil sjá hverjir eru að lesa ruglið mitt, ef það eru einhverjir?!?

Ble í bili!

+ Sigrun bloggaði kl. 17:54 +

~~~~~~*~~~~~~

mánudagur, júlí 11

JEYYYYYYY

Búin að taka 3ja prófið úr Sjálfstæðu Fólki .. fékk 9,5 !! :D:D:D

Núna ætla ég að reyna að draga Lilju með í sund og svo ætla ég að byrja að lesa 4.hlutann!! :D

Ohh hvað ég er hamingjusöm að hafa náð svona góðu ;)

+ Sigrun bloggaði kl. 16:31 +

~~~~~~*~~~~~~

sunnudagur, júlí 10

Jæja ......

Þvílíka magnið sem ég náði í af spólum á videóleigunni í gær..
Tók Notebook og Hide and Seek og eina gamla með.. keypti svo 3 spólur þar sem var hægt að fá stk. á 99 og 199 kr.- alls ekki slæmt!
Ætlum að kaupa Notebook á eftir þegar við skilum... sem kostar að vísu 599.- en það bíttar litlu..

Var að koma úr sundi með Halldóri,Gyðu,Lilju og Hönnu og var sundið algjört æði... ekki leiðinlegt að fara í sund skal ég segj'ykkur :) .. Ég hefði kannski samt átt að sleppa því þar sem ég er með snert af blöðrubólgu en ég nennti ekki að hanga heima..

Núna stendur til að ..

-lesa aðeins og læra svo ég geti tekið próf á eftir..
-Borða
-Horfa svo á Hide and Seek
-Út á videóleigu að skila..
-Far'að sofa ..

Bleeeeeeee!

+ Sigrun bloggaði kl. 18:28 +

~~~~~~*~~~~~~

laugardagur, júlí 9

Það er kannski.....

..... kominn tími á að maður bloggi aðeins?!? Hmmm..
Ég er búin að vera í einhverri smá blogglægð í nokkra daga, sem skiptir kannski ekki miklu þar sem ég hef ekki haft frá neitt miklu né merkilegu að segja.. og ekki heldur núna hehe..
Ég er búin að vera dugleg núna í vikunni að fara í sund með Gyðu og Halldóri, en ég get hinsvegar ekki sagt að ég sé búin að vera jafndugleg að læra..
Það stendur nú samt til að breyta því og læra eitthvað í dag .. eftir sund með Lilju ef ég get dobblað hana með mér :D
Annars vorum við systurnar að koma úr Kringlunni.. við kíktum þangað til að kaupa sundföt á Lilju og endaði hún á að kaupa sér þessar fínustu buxur í Maraþon, þar sem við rákumst á félagana Sigga og Kalla - alltaf jafngaman að hitta þá .. þeir eru alltaf svo hressir og skemmtilegir þessi krútt!! :D

Núna er ég að spá í að taka nettan bloggrúnt og fara svo að gera eitthvað af viti..
Ble í bili pípúl!

+ Sigrun bloggaði kl. 17:20 +

~~~~~~*~~~~~~

miðvikudagur, júlí 6

Núnú..


Ég tók svona próf þar sem maður fyllir út og kemur svo í ljós hvaða stjörnu maður líkist.. Þetta var víst mín útkoma .. Paris Hilton .. haha :)

TJékkið á'essu og segið mér ykkar !!

+ Sigrun bloggaði kl. 11:42 +

~~~~~~*~~~~~~

laugardagur, júlí 2

Ég skellti mér í Smáralind áðan með Berglindi aðalskvízu;)
Kominn ekkert lítill langur tími síðan við sáumst seinast.. einhvern tímann í september held ég bara :/ Stelpan er á fullu að flugfreyjast og ég er ekkert smá abbó.. hún er nýkomin frá Köben og svo er það London á morgun og N.Y og San Fransisco á næstunni.. spáið í spennandi dóti!!

. . .

Þetta þyrfti ég að gera.. eitthvað svona skemmtilegt job.. eða bara eitthvað út - drulla þessum fjandans stúdent af.. sem er það eina sem er að halda mér á klakanum - ég hef ekki samvisku í að fara að ferðast eitthvað og skemmta mér, áður en ég klára stúdentinn!
En ef allt gengur nú vel þá er bara ár í það og þá er ég frjáls .. frjáls eins og fuglinn hehe !

. . .

Ég er að fara að lesa núna til að eiga skilið að fara og hitta ástarkrúsina mína, við ætlum að taka videó og hafa það ofsa kósý saman !! :D:D

. . .

+ Sigrun bloggaði kl. 19:06 +

~~~~~~*~~~~~~

   
Copyright 2005 Sigrún Edda