| |
|
|
laugardagur, apríl 30
Við erum að tala um það að auðvitað skellti ég mér í göngu í morgun. Mín var mætt hress og spræk uppí FB til að geta farið í samfloti með kennaranum.. gangan var nefnilega uppá Nesjavöllum.. Heyrðu um svona 10:15 er byrjað að rölta af stað, fyrst svona smá spotti á jafnsléttu og svo kom að einhverjum hjalla sem var uppá við.. ég var bara á gömlu Adidas skónum en ekki einhverjum svaða gönguskóm eins og allir hinir, og var því svoldið að renna þarna í snjónum sem var þarna.. Anyhow, eftir þennan fyrsta hjalla var ég GJÖRSAMLEGA búin á því.. fór að velta því mikið fyrir mér hvað í fjandanum ég væri eiginlega að gera þarna, af hverju ég hefði ekki hlustað á M&P sem sögðu mér í byrjun að ég væri engin manneskja í þetta.. ég er með EKKERT þol! .. Jæja við löbbum þarna svo á jafnsléttu og þar kom að öðrum hjalla þar sem mín bara gafst upp.... Ég hlammaði mér niður og fékk mér vatn að drekka, ekkert að láta kennarann vita að ég væri að fara að beila..neinei ég tölti bara til baka en spáði nú auðvitað í því hvernig ég ætlaði eiginlega að koma mér í bæinn aftur... Ætlaði að hringja í pabba en það var ekkert samband svo ég byrjaði bara að labba veginn að RVK og búin að labba dágóðan spotta þegar LOKSINS kom þarna vörubíll sem ég húkkaði far hjá... lenti þarna á mjög almennilegum manni á aldur við pabba, og svo þegar við komum í bæinn þurfti hann að fara með vörubílinn í Bíldshöfða en var svo hrikalega nice að skutla mér svo uppí FB þar sem Eygló var lagt .. - Ég skutlaðist síðan á Skalla og fékk mér skinkubát.. sem ég átti nú alveg skilið fyrir allt erfiðið sem ég hafði lagt á mig!!! ;)
+ Sigrun bloggaði kl. 16:16 +
~~~~~~*~~~~~~
miðvikudagur, apríl 27
Jæja þetta er víst dagurinn minn í dag.. ekki svo gaman því mér finnst ekkert gaman að eldast!! Ég var rosa dugleg í gær að baka.. eina köku fyrir minn dag og eina fyrir Hans Inga dag á morgun.. Við fórum að passa hjá Írisi systur í gær og var það í fyrsta skipti EVER sem ég sá hana stóru systir mína ölvaða,.. hún var alveg vel skrautleg.. Þessi dúlla er ekkert vön að vera að drekka en fékk sér nokkur rauðvínsglösin með vinkonum sínum og það fór svona líka skemmtilega vel í hana.. - Hún var varla að geta labbað sjálf, Lilja þurfti að leiða hana.. - Við vorum síðan að skoða myndir og venjulega hefði Íris bara kjaftað og svona, en í staðinn kom þessi einkennilegi hlátur frá henni og furðulegi svipur.. mér var ekki alveg farið að standa á sama, hún var svo skrítin haha.. - Þessi elska kórónaði svo gleðina með því að æla á gólfið.. Við Lilja tókum því bara sem nettu "kjúi" og létum okkur hverfa.. Gummi maðurinn hennar hefur vafalaust skemmt sér yfir að þrífa rauðvínssletturnar af gólfinu :/
+ Sigrun bloggaði kl. 14:29 +
~~~~~~*~~~~~~
þriðjudagur, apríl 26
Ahh það er ljúft að sofna í hádegishlénu sínu og koma svo endurnærður til vinnu .. ég hallaði mér uppí kaffistofu og já.. ég ætla ekki að kvarta, það var vel nice. Samt ekki svo nice þegar ég var að rölta útí hús í ljúfa veðrinu, þegar ég heyrði svona ískur og vissi ekkert hvað það var, .. stoppaði aðeins og heyrði ekkert, hélt svo áfram að ganga og þar kom ískrið aftur, .. hreyfði hálsinn aðeins fram og tilbaka og var þetta ískur þá ekki bara í mér.. - jafn paranoiuð og ég get verið, hélt ég að væri kannski randafluga á mér or some,.. svo ég dreif mig nottla útí hús til að fá hjálp - þá var þetta bara ískur í hálsinum after all!... Svoldið skrítið samt!!
Ég elska veðrið sem er núna , .. ég hef verið að spá hvort maður ætti bara að skella sér í göngutúr eftir vinnu.. fara heim og skipta um föt, og taka svo Gyðu Stefaníu með í kerru og taka strætó niðrí bæ og rölta svo bara .. - það er nebbla svo pirrandi að fara á bíl því ef maður labbar t.d. niður Laugaveginn, þá neyðist maður til að þramma hann allan upp aftur til að ná í bílinn.. mér finnst það ekkert svo rosalega gaman sko þannig ágætt að sleppa því ... + það að hún Gyða litla er mjög spennt fyrir að fara í strætó ,.. hefur oft spurt hvort ég muni einhvern tímann fara með hana í svoleis einhvern tímann .. :) ... Ég er nú hrædd um að ég hafi brotið aðeins litla hjartað hennar í gær, alveg óvart samt.... Hún var búin að kubba svo rosa flott handa mér og Lilju og lét okkur svo hafa það .. en mitt dót datt í gólfið og fór í sundur þannig ég reyndi auðvitað að redda dæminu, nema hvað að ég var greinilega ekki að gera þetta rétt svo hún sagði mig vera að skemma það sem hún bjó til og grét alveg rosalega sárt... Mér nottla brá og reyndi að redda þessu eins og þetta átti að vera og náði að bjarga þessu tæplega fyrir horn.... hjúkket!! :)
En núna ætlar Sigrún litla að halda áfram að vinna, þó það sé ekki mikið sem hægt er að gera.. en þá hangi ég bara í tölvunni ;);) Er að spá í að fá að fara snemma heim á morgun, en ég sé til!!
PS: Koma svo með nothæfar uppástungur að afmælisgjöf handa honum Hans Inga mínum ... ég er tóm!!!!!
+ Sigrun bloggaði kl. 13:32 +
~~~~~~*~~~~~~
mánudagur, apríl 25
Minnz í vinnunni og búinn eftir 2 tíma og 5mín .. not bad!!Sorrý Ósk að skella á þig á MSN - þurfti að skipta um tölvu!Núna þarf ég MJÖÖÖG góðar uppástungur að því hvað ég á að gefa mínum æðislega kærasta í afmælisgjöf - ég er alveg ráðþrota.Ég hef gefið alveg góðan skammt af skartgripum í gegnum árin svo við sleppum því í þetta skiptið :D - Seinustu afmælisgjöf gaf ég honum föt og í jólagjöf gaf ég honum úlpu og föt .. Svo núna verðiði að hjálpa mér að finna eitthvað rosa flott handa gullinu mínu!!:)Hmmm... og svo útí aðra sálma - Hvað á ég að biðja hann að gefa mér?!?;) hehe
+ Sigrun bloggaði kl. 13:55 +
~~~~~~*~~~~~~
sunnudagur, apríl 24
Ég fór að vinna í morgun og var frá 10-14 eins og í gær, og var þetta mjög fínt..Eftir vinnu var svo rosalega gott veðrið að ég bara gat ekki hugsað mér að fara heim og láta það fara til einskis.. þannig ég bjallaði í hana Daggrós mína og við fórum út að ganga....... og ekkert þennan venjulega göngutúr, heldur smelltum við okkur bara niðrí Nauthólsvík og löbbuðum þar alveg dágóðan spotta..Eftir á var planið að fara á kaffihúsið þarna í víkinni en það var svo fullt svo við fórum í bakaríið í Glæsibæ og fengum okkur þar að borða :)Ég er hinsvegar að fara að fá mér kvöldmat núna, I KNOW - ekkert smá seint, og ég varla með almennilega matarlyst þar sem ég er búin að vera að narta í nammið sem ég keypti mér í gær .. ENNNN .. - - - Ble.!!
+ Sigrun bloggaði kl. 19:50 +
~~~~~~*~~~~~~
laugardagur, apríl 23
Ég vaknaði hress og kát í morgun og komin í vinnuna kl.10 .. Þetta var bara rosa fínt, ritarastarfið semsagt, mikið reyndar að komast inní en allir voða tilbúnir að hjálpa manni, sem er stór plús. Niðrí matsal fékk ég mér svo hrísgrjónagraut .. nice að fá svona heitan hádegismat! :) Ég var búin að vinna kl.14 og fór þá heim og í heita sturtu ... mmm ;) Litaði augnhárin á mömmu og er núna bara eitthvað að hangsa í tölvunni, .. ætla að horfa á einn One Tree Hill þátt og fara svo með Lilju að kaupa dótarí til að gera vöfflur..
+ Sigrun bloggaði kl. 16:18 +
~~~~~~*~~~~~~
föstudagur, apríl 22
Það sem ber hæst á í dag er að BESTI PABBALINGURINN í öllum heimum og geimum á afmæli í dag :):):)Ég elska hann pabba sko mikið, yndislegri mann er ekkihægt að finna!!!:) ( Það finnst örugglega öllum um sína pabba hehe :) ) Vil svo óska henni Hildi til hamingju með afmælið.. DK-gellan er orðin 21 árs so CONGRATZ !!Anyhow . . . Jeyyy það er að koma helgi og ég er vel sátt við það..Er reyndar að vinna á Borgarsp. báða dagana en það er bara frá 10-14 svo það gerir nú lítið til.Ég er ótrúlega sátt með veðrið sem er búið að vera í dag, sól og blíða , en eins og venjulega þá hélst sólin ekki lengi, en hlýja veðrið of course !! :)Ég er rosa ánægð að ég er ekkert að fara að vinna eftir kl.16 .. bara nicely-heit heima og kósý .. ekki búin að ákveða hvort ég fari til Hans Inga eða ekki, þar sem er vinna á morgun og útaf afmælinu hans pabba!!! :)PS: Ég fann alveg yndislega síðu á netrúntinum sem þið VERÐIÐ að sjá!!! .. <Hér er hún> .. Þetta eru alveg rosalega fallegar pónýhestamyndir.. loving it!!
+ Sigrun bloggaði kl. 15:17 +
~~~~~~*~~~~~~
fimmtudagur, apríl 21
GLEÐILEGT SUMAR !!!!Núna er loksins komið sumar, allavega samkvæmt dagatalinu.. ekki neitt rosa mikið sumarveður samt, sem er svoldið svekkjandi... en það fer vonandi að láta sjá sig!! ;)Ég fór niðrá Borgó í gær og þar var rosalega nice kona að kenna mér á þetta ritaradæmi... u wouldnt believe hvað er ótrúlega mikið sem þarf að gera, ótrúlega flókið sko - en eins og hún sagði líka,þá virkar þetta miklu flóknara svona fyrst en svo verður þetta ekkert mál.. ég fer að vinna þarna um helgina :)Í gær var svo hringt í mig útaf annarri vinnu sem ég sótti um í mars, og fer ég í viðtal útaf því á morgun... ef ég fæ þá vinnu líka erum við að tala um að ég verð í 4 vinnum - vinnandi alla daga .. En við sjáum hvernig fer........Annars er ég bara nýkomin heim, en ég fór að vinna í Knickerbox í dag frá 12:45-17:00 ...þetta var bara mjög gaman, tíminn fljótur að líða þar sem var alveg ágætt að gera + það að ég var að taka upp nýjar vörur.. svo tíminn bara leið .. ;)Um 19 leytið er svo pælingin að fara til Hans Inga og við ætlum að fá okkur eitthvað gotterí að borða .. nammi namm!!!
+ Sigrun bloggaði kl. 17:34 +
~~~~~~*~~~~~~
miðvikudagur, apríl 20
Ég fór í viðtalið í gær og það gekk bara rosa vel.. Ég er að vinna núna og fæ að fara kortér í 16 og þá brunar mín bara heim og skiptir um föt og svo yfir í hina vinnuna, sem er semsagt að sinna starfi ritara á Borgarspítalanum .. ég er mjög spennt að sjá hvernig þetta fer, í dag verður mér bara kennt á allt dæmið , sem á vonandi eftir að ganga vel :)Þannig við erum að tala um 12 tíma vinnudag takk fyrir.. þar sem ég verð líklegast til 20 að vinna í kvöld .. - en það er bara gaman!! :D
ANTM í kvöld og að sjálfsögðu verður mín límd við skjáinn.. en ekki hvað???Ég veit samt hver vinnur,meiraðsegja áður en þáttaröðin byrjaði hérna,.. Ég nebbla asnaðist til að fara inná UPN.COM og þá var einmitt mynd af sigurvegaranum með Tyru Banks,.. ekki alveg að gera góða hluti sko,.. en það er samt alveg gaman að horfa á þættina, því ég nottla veit ekki í hvaða röð stelpurnar detta út hehe. Ég hef samt verið að skoða nokkrar blog.central síður seinustu daga og það er eitthvað voða vinsælt hjá einhverjum aðila út í bæ að commenta á síður og segja hver vinnur ANTM .. common .. áttu þér ekki líf?!? - Greinilega ekki ef þú stundar þetta!!!En ég kveð að sinni og skrifa aftur á morgun og segi hvernig fyrsti dagurinn minn fór í nýju vinnunni :) Á morgun verð ég svo að vinna í Knickerbox.. þannig það er alveg nóg að gera hjá mér sko :) .. Sem er gaman.. sem er MJÖÖG gaman !!
+ Sigrun bloggaði kl. 15:11 +
~~~~~~*~~~~~~
þriðjudagur, apríl 19
Minnz er í vinnunni núna.. voða rólegt að gera hjá mér núna.. sem er bara ágætt :) Ég er samt búin að vera svo ótrúlega þreytt í dag eitthvað að það er ekki eðlilegt, sígeyspandi :)Annars er ég að fara í atvinnu-viðtal eftir vinnu og mig hlakkar mikið til... væri mjög gaman að fá þessa vinnu, en ef ég fengi hana væri það jafnframt vinna nr.3 hjá mér .. sem þýðir að ég myndi vera að vinna ALLA daga og aldrei frí... - ég veit ekki alveg með það sko.. hvort maður verði ekki þreyttur á því til lengdar..- en það eru peningar :D
+ Sigrun bloggaði kl. 14:35 +
~~~~~~*~~~~~~
mánudagur, apríl 18
Laugardagskvöldið var ótrúlega nice, ég fór til Hans Inga og málið hjá okkur var að leigja spólu. En þar sem hann var með einhverja spólu heima þá fórum við bara og keyptum nammigott.. ég leyfði honum svo fyrst að horfa á einhverja leiðinlega mynd í sjónvarpinu á meðan ég hékk í tölvunni.. svo skiptum við, hann fór í tölvuna á meðan ég horfði á SWAN á Skjá Einum .. og svo horfðum við á myndina The Grudge !! Ojjjj þetta var svo ógeðsleg mynd, verð að játa að ég var rosa hrædd á meðan myndin var, ríghélt í hendina á Hans Inga á meðan hann bara sofnaði..eins og venjulega!! Eftir á var ég líka hálfsmeyk, Hans Ingi ætlaði að strunsa á undan mér inní rúm EN ÉG HÉLT NÚ EKKI!! hehe lét hann vera samferða mér svo ég tæki ekki hræðslukast þarna..Á sunnudeginum vöknuðum við kl.9 .. ég var ekkert of sátt því ég vildi sofa lengur sko, en morgunhaninn fékk að ráða svo við vorum bara að knúsast og kúra til 11 en fórum þá framúr, .. fórum svo á American Style þar sem ég fékk ekkert smá góðan hamborgara,.. fórum svo í Bónus að versla og svo heim að horfa á videó ..Ég var svo hjá honum fram á 19/20 en fór þá heim og var þar í rólegheitum þangað til ég fór að lúlla mér um miðnætti..Er núna í vinnunni og bara rétt klukkutími eftir... tíminn er svo fljótur að líða hérna að það er ótrúlegt - I LOVE IT!!!!
+ Sigrun bloggaði kl. 14:57 +
~~~~~~*~~~~~~
laugardagur, apríl 16
Þetta er of sætt.. Ég lánaði Gyðu Stefaníu bangsa og hún er á fullu að skamm'ann og siða til.. og fór svo til pabba og var að segja honum hvað hann væri óþekkur og að afi sinn þyrfti sko að skamm'ann.. að bangsinn þyrfti bara að fara í skammarkrókinn .. og pabbi tekur þarna alveg fullan þátt í þessu, er að siða bangsann til fyrir hana .. hahahaha .. hvernig er hægt að vera svona mikið krútt???
+ Sigrun bloggaði kl. 19:20 +
~~~~~~*~~~~~~
Systrakvöldið var geggjað gaman.. leigðum Cinderella Story sem er geggjað skemmtileg mynd, pöntuðuð pizzu og höfðum það illa kósý!!Horfðum reyndar aðeins á Ungfrú Reykjavík en kláruðum ekki að horfa svo við vissum ekkert hver vann. .. en ég var að kíkja á Ungfrú Ísland síðuna og sá þá hver vann, og það var einmitt stelpan sem mig grunaði alveg sterklega að myndi taka þetta... Samt hef ég undanfarna daga séð á einhverjum bloggsíðum hvað fólk er eitthvað að dissast með að ef hún vinni þá er það bara útaf hver mamma hennar er... ekkert smá fáránlegt og lýsir klárlega engu nema afbrýðisemi, því þessi stelpa bar ekkert smá af þarna í gær.. - ég var líka mjög sátt við 2. og 3.sætið .. einmitt stelpur sem mér fannst líka vera að standa sig vel þarna í gær...Mér til mikillar gleði þá var gönguferð FB frestað um óákveðinn tíma vegna roks og rigningar.. Ég get sko engan veginn kvartað haha.. æði að vera heima og geta horft á Glæstar vonir og sonnnna ;) hehe.. og horfa á The Deep End sem við leigðum líka í gær.. - nóg að gera sko!!
+ Sigrun bloggaði kl. 11:19 +
~~~~~~*~~~~~~
föstudagur, apríl 15
Mín er bara í góðu chilli í vinnunni.. búin að gera allt sem á að gera.. allavega í bili :) .. Gærkvöldið var mjög nice, ég fór og hitti Þórunni sætaling á kaffihúsi niðrí miðbæ og við kjöftuðum endalaust,.. ásamt nottla að fá sér í gogginn og svo súkkulaðiköku með ís... NAAMMI.. við vorum vel sáttar hehe..Ég var komin heim að ganga 23 og um 23:30 var stelpan háttuð og komin undir sæng takk fyrir... ahh svo þægilegt að sofna snemma.Kom honum föður mínum svo skemmtilega á óvart í morgun með því að vera fljót á fætur og að taka mig til.. stundvísi hefur ALDREI verið mín sterkasta hlið en ég er nú að reyna að taka mig á :) Þó hef ég tekið framförum þegar kemur að því að sletta einhverju á andlitið... hérna áður fyrr voru það engar 5-10mín sem fóru í það.. það var frekar svona 20mín og + !!Ég á að vera að vinna hérna til 16 en fæ að fara fyrr því ég er að fara í prufu kl.16:15 .. Er samt eiginlega ekki að nenna því .. búin að vera að vinna frá því 8 í morgun og að vera að vinna til 19 er ekkert svaðalega spennandi..Í kvöld ætlum við Lilja svo til Írisar og ætlum að hafa ekta systrakvöld.. leigja spólur, panta pizzur og borða endalaust af nammi .. og svo spjalla framá nótt eins og okkur einum er lagið.... Samt kannski ekki alveg þar sem ég verð að fá allavega einhvern svefn þar sem við Diljá förum í fyrramálið í göngu með FB .. gönguáfanginn góði kallar.. ÚjE!En núna er ég að spá í að hætta að blaðra, þetta er orðið alveg ágætlega langt og gott hjá mér .. bleble
+ Sigrun bloggaði kl. 14:07 +
~~~~~~*~~~~~~
fimmtudagur, apríl 14
Úff púff.. ég átti svo erfitt með mig í morgun (eins og jú alla morgna sem ég þarf að mæta í vinnuna) að vaaakna..!! Hans Ingi lætur klukkuna hringja kl.6:40 sem er öfga þægilegt því þá hefur maður allavega 20mín til að kúra aðeins lengur undir sænginni........ en 20mínúturnar eru fljótar að líða og þá er komið að tímanum þar sem ég reyni að kreista 5mínútur og 5mínútur lengur til að vera í rúminu.. (þessi mínútur eru nota bene MJÖG heilagar fyrir mér og ég tek sko ekki vel í ef fólk gerir tilraun til að eyðileggja þær) .. eitthvað sem Hans Inga finnst alveg rosa fyndið,.. hann getur svo ómögulega skilið hvernig nokkur getur verið svona ógeðslega morgunfúll, hann er sjálfur svo fljótur á fætur...Anyhow.. - Hafiði fundið góðu lyktina í miðbænum ?!? I HAVE og hún er æðisleg... þetta er einhvers konar bakaríslykt, þó ekki þessi venjulega eins og maður finnur venjulega þegar maður er nálægt bakaríum... - þetta er sérstaka miðbæjarlyktin og ég ELSKA hana.. Hún minnir mig eitthvað svo á þegar ég var yngri hjá afa og ömmu .. sjálfsagt því ég var oft hjá þeim þegar ég var yngri og þau bjuggu hérna í miðbænum .. - allavega þessi lykt toppar allt!!!!En ég er farin að halda áfram að vinna, .. það er ekkert að gera en ég fæ samt svo geggjað samviskubit að hanga í tölvunni .. þó ég megi það alveg hehe...
+ Sigrun bloggaði kl. 14:29 +
~~~~~~*~~~~~~
miðvikudagur, apríl 13
Jammz ég fór til Hans Inga um hálfátta í gær, færandi mat hehe og hann var ekkert smá sáttur .. mamma hafði eldað hakk og dótarí, sem er einmitt uppáhaldið hans svo hann var rosa ánægður :) Ólöf kom svo með helling af spólum og við horfðum á Jack and Sarah og svo bara í rúmið.. ég er alltaf svo þreytt þegar líða tekur á kvöldið og var búin að hlakka endalaust til að lúlla mér, Hans Ingi greyið ekki alveg jafn sáttur en lét þó undan frekjudollunni hehe .. vorum semsagt komin undir sæng kl.22:45 takk fyrir !! :)
Núna er ég að bíða eftir að maturinn verði tilbúinn.. pabbi er að grilla pulsur... (nammmmmmi) .. veðrið svo æðislegt að annað er bara ekki við hæfi.. svo ætla ég í ljós og svo til Hans INga :)
+ Sigrun bloggaði kl. 19:01 +
~~~~~~*~~~~~~
þriðjudagur, apríl 12
Hvað er málið með veðrið þessa dagana? Það er alveg illa fáránlegt.Í gærdag var ég alveg fullviss um það að núna væri sko vorið/sumarið að koma.. - vakna svo í morgun og Hans Ingi segir að það snjói úti .. hmmm... ég ætlaði sko ekki að trúa honum .. en það var víst málið - kyngdi alveg snjónum niður... - Fer svo í vinnuna í morgun og þegar fer að líða að hádegi erum við að tala um glampandi sól, reyndar rosalegan kulda en svakalega sól og læti ---- Ég er ekki að skilja dæmið .. Held að veðurguðirnir ættu nú að fara að ákveða sig takk fyrir, sumar fyrir mig!!:)Annars er ég að spá í að fara niðrí Kringlu og kaupa mér eitthvað sniðugt, eins og t.d. buxur á 1500 keeeell .. - svo erum við Þórunn að spá í að hittast aðeins eftir mat, og svo ætla ég til Hans Inga míns :):)
+ Sigrun bloggaði kl. 16:20 +
~~~~~~*~~~~~~
mánudagur, apríl 11
Þvílíka sukk sem hefur verið á manni seinustu daga.. úff :SÉg fór til Hans Inga á laugardagskvöld og auðvitað leigði ég spólu og keypti bönns af nammi handa okkur.. Ólöf kom svo heim með ennþá meira nammi ... - algjörlega í hollustunni hehe.. Í gærdag vorum við dugleg.. fórum út á hádegi og fengum okkur skinkubát á Skalla (NAMMMMMI) og fórum svo í Bónus að versla,.. svo var farið heim og mér fannst ekki alveg ganga draslið sem var búið að safnast svo við skötuhjúin fórum að þrífa, Hans Ingi var reyndar ekkert í neinu svakalegu stuði og ætlaði í fyrstu ekkert að nenna þessu rugli en ég dró hann í þetta og eftirá vorum við rosa sátt með útkomuna.. Lögðumst síðan kylliflöt í Lazyboy sófann ógó-þægilega og horfðum á video.. ég var reyndar ekki lengi að sofna og lúllaði mér til 18 og lá eins og skata samt til 19 , en þá fórum við og fengum okkur að borða á American Style.. keyptum okkur svo Shake og fórum heim og horfðum á eina spólu.. Meiriháttar góð helgi fannst mér!! :DÉg held barasta svo að vorið sé LOKSINS komið .. í gær var yndislegt veður og í dag ennþá betra.. sól og blíða :D
+ Sigrun bloggaði kl. 16:27 +
~~~~~~*~~~~~~
laugardagur, apríl 9
KOmin í helgarfrí sem er hreint ekki leiðinlegt.Ég og Lilja smelltum okkur í Smáralind í gærkvöldi til að tékka á videóvél sem ég er kannski að spá í að kaupa. Eftir það vorum við sniðugar og fórum á Fridays og fengum súpergóðan mat, pöntuðum einhverjar Quesidilla, einhversk. Burritos en fengum í staðinn einhver svaðalegan mat, svona þriggja hæða dótarí.. á efsta voru nokkrar Fajitas kökur og á hinum eitthvað gums til að setja oná.. ekki eitt svona stykki heldur 2!! - Það hafði semsagt orðið einhver mixup þannig við borguðum bara það sama fyrir þetta og hitt :DÉg fór svo til Hans Inga í gærkvöldi, leigði nokkrar spólur hjá Ólöfu systur hans .. við vorum samt bæði svo þreytt að við horfðum á eina heila - myndina Paparazzi sem er mjög góð, og smá á myndina Abandon en fórum svo bara í rúmið. Í dag fór hann snemma til ömmu sinnar og afa því pabbi hans kom í bæinn og fór þangað, ég kaus að halda mig heima yfir TV :D
Næsta föstudag er ég svo að fara að prófa nýja vinnu, sem vonandi endist sem önnur hver helgi-vinna .. Jafn-sweet og það er að vinna aldrei um helgar, þá er samt líka sweet að vinna aðeins meira og fá þar að leiðandi meiri pening .. það er aldrei leiðinlegt ;)Annars er ég farin til Hans Inga míns núna, alltaf nice að hafa það kósý með honum :)
+ Sigrun bloggaði kl. 18:50 +
~~~~~~*~~~~~~
föstudagur, apríl 8
Lonely, I am so Mr. Lonely, I have nobody for my own. I am so lonely, I'm Mr. Lonely, wish I had someone to call on the phone. Now I'm a soldier, a lonely soldier, Away from home, through no wish of my own. That's why I'm lonely, I'm Mr. Lonely, I wish that I could go back home. Letters, never a letter, I get no letters in the mail. I've been forgotten, yeah, forgotten, Oh how I wonder, how is it I failed. Now I'm a soldier, a lonely soldier, Away from home through, no wish of my own. That's why I'm lonely, I'm Mr. Lonely, I wish that I could go back home.
+ Sigrun bloggaði kl. 16:42 +
~~~~~~*~~~~~~
mánudagur, apríl 4
Life is what you make it?? Alveg óháð hvaða menntun maður er með og annað, ef maður vill hamingju og veit hvernig maður á að öðlast hamingjuna, á maður þá ekki að drífa í því og taka smá áhættu? Gera það sem maður vill gera , í staðinn fyrir að gera það sem maður heldur alltaf að sé skynsamlegast???
+ Sigrun bloggaði kl. 21:53 +
~~~~~~*~~~~~~
sunnudagur, apríl 3
Ég er ennþá veik og það er ekki gaman :(Í gær vaknaði ég með hálsinn alveg geggjað bólginn og ég veit ekkert hvað er að.. það er annað hvort eitlabólga eða strektakokkasýking (veit ekkert hvernig það er skrifað hehe) .. allavega, þetta er frekar óþægilegt dæmi, voða vont að kyngja..Ég er bara ekki að meika að fara að sleppa vinnu aftur, vona að ég verði eitthvað betri á morgun,... alveg endalaust boring að hanga bara heima .. ég er komin með alvarleg fráhvarfseinkenni .. I WANNA GO TO WORK!!!!!!!
+ Sigrun bloggaði kl. 16:37 +
~~~~~~*~~~~~~
föstudagur, apríl 1
Ekki svo gaman að segja frá því að mér hefur ekkert tekist að blogga hérna seinustu 2 daga.Gerði tilraunir, bæði í gær og fyrradag og ekkert tókst svo vonandi að þetta fari í gegn.Anyhow, ég fór ekki í vinnuna í gær og dag vegna mikils slappleika og hálsbólgu, vonandi að ég verði búin að ná mér á helginni því ég meika ekki að hanga svona heima og gera ekki neitt, alveg komin með fráhvarfseinkenni og farin að sakna fólksins sem ég er að vinna með .. bara frábært fólk sem ég er að vinna með :)Annars í fyrradag fór ég niðrí Kringlu með Lilju því hún fór að tékka með einhverja peysu, og einmitt þegar við erum að koma framhjá Hard Rock, kemur Frank hlaupandi - en það er algjör snilldargaur sem var að vinna þarna með mér seinasta sumar. Allavega, hann var nottla voða kammó eins og hann er alltaf og var ekki lengi að kynna sig fyrir Lilju og segja hvað hún væri jafnsæt og systir sín... svo var hann svo mikil dúlla að hann byrjaði að knúsa mig og sagði við Lilju : ,,I love your sister to death... she's a sweetheart and so are you'' - Spáið í algjöru krútti hehe... Svo var hann að segja mér frá því að hann væri kominn yfir þarna, en þegar ég vann þarna nokkrar vaktir seinasta sumar, þá var hann bara í salnum eins og ég.... Þannig svo fór hann að bjóða mér vinnu, spurja hvort hann mætti ekki bjalla í mig og fá mig í vinnu eitthvað, en ég var ekkert rosalega æst í það... fann það alveg seinasta sumar hvað ég var komin með leið á þessu jobbi því ég var að vinna við það sama á PizzaHut í den :).. En vá hvað kom manni í gott skap að hitta hann, allavega mín reynsla af Ameríkönum er alveg hrikalega góð, .. ég var líka ekkert á því að ég liti eitthvað sérstaklega vel út en þá bara toppaði hann bara allt þegar við hittumst og alveg : ,,You look good baby... like always'' .. algjört gull ;)Annars er ég greinilega alveg rosalega eftirsóttur starfskraftur, en á seinustu dögum hefur mér verið boðin vinna í Knickerbox og World Class, svo nottla Hard Rock .. og seinast í morgun var hringt í mig og mér boðin vinna sem ritari.... - Ég er bara svo glöð í vinnunni sem ég er í núna að ég bara tími ekki að skipta, .. það þyrfti allavega að vera eitthvað megagott starf og illa vel borgað til að ég myndi tíma að sleppa vinnunni sem ég er í núna,.. - samt er ég að spá í að fá mér einhverja helgarvinnu á næstunni , þar sem aðaljobbið mitt er bara virka daga 8-16 (sem rokkar feitast takk fyrir) hehe :)En núna er ég farin að gera eitthvað skynsamlegt, eins og að skreppa útí banka og borga skuldir!
+ Sigrun bloggaði kl. 13:01 +
~~~~~~*~~~~~~
|
|
|
|