miðvikudagur, mars 31


+ Sigrun bloggaði kl. 23:51 +
~~~~~~*~~~~~~
Eitt enn sem ég gleymdi að segja..
Ég er búin að vera að fylgjast með O.C - of course, hvað annað??!!
Allavega , þið ykkar sem eruð eitthvað að horfa á þættina, takið eftir mömmu stráksins þarna sem Ryan býr hjá,
semsagt mamman og Inga NASA eru ekkert smá líkar ... ég er búin að vera að spá mikið í þessu þegar ég hef horft á þættina, og Eva er meiraðsegja sammála mér , og þá er sko mikið sagt :)
En fylgist með þættinum , and see what I mean ;)
Hér er semsagt gellan sem er svo lík Ingu!!
+ Sigrun bloggaði kl. 19:49 +
~~~~~~*~~~~~~
Ég vil byrja á að leiðrétta misskilninginn á seinasta blogginu ....
Þessar tilvitnanir, sérstaklega þessar tvær efstu sem voru misskildar svona svakalega, "representa" á ENGAN hátt biturleika minn til lífsins :)
Ég er mjög kát og hamingjusöm og ekki til neitt í mér sem heitir að vera bitur.
Ég er bara mjög upptekin þessa dagana að reyna að vera dugleg í skólanum, samhliða því að skipuleggja mína glæstu framtíð!!
Já ég mun lifa æðislegu lífi, ég verð sko engin venjuleg íslensk húsmóðir heldur eitthvað miklu meira.
Það er ekkert svo mikið búið að skipuleggja, jú það er auðvitað glæsilegt plan okkar Evu :):):)
En svo á eftir að plana allt það frábæra sem við munum gera meira, og það verður sko ekki af verri toganum, líf okkar mun ekki verða venjulegt, það get ég allavega lofað ykkur.
Annars er það að frétta af lífi mínu , að ég er ekki ENNÞÁ byrjuð á ritgerðinni sem ég á að skila fyrir lok þessarar viku, og ég ætlaði að byrja á um helgina....
en það er nægur tími framundan, ég byrja bara á henni á morgun og klára hana þá, þetta eru nú bara 2bls :)
Svo er ég núna að fara að lesa undir landafræðipróf, sem ég þarf svona eiginlega að fá mjög gott útúr ef ég á að ná áfanganum... það er bara að krossleggja fingurna og vona það besta :)
En guð minn góður .. ég rakst á svo hallærislegt dæmi núna áðan....
ég veit ekki hve margir vita af þessu, en það er einhver fegurðarkeppni sem verður haldin núna í apríl eða maí, og ber hún það hallærislega heiti : Ísdrottningin 2004 !!
Sko fyrst þegar ég sá að verið var að auglýsa eftir stelpum í þetta í janúar, þá hugsaði ég með mér : Jáhhh .. sjénsinn að einhver heilvita stelpa fari að skrá sig í keppni þar sem hún fær titilinn : Ísdrottningin .. HOW LAME??!!?!
En neihhh... það eru víst til stelpur sem vilja vinna þennan mjög svo "skemmtilega" titil.
Endilega kíkið á
Ísdrottninguna og sjáið stelpurnar sem keppa.. - Ég hef bara ekki vitað það hallærislegra!!
Og bara svo enginn misskilji mig, þá er ég ekki mótfallin fegurðarsamkeppnum eða svona keppnum yfir höfuð, en common, hver sækist virkilega eftir þessum titli ?? - jú obviously þessar stelpur sem hafa skráð sig í keppnina!! tsss.....
+ Sigrun bloggaði kl. 19:23 +
~~~~~~*~~~~~~
þriðjudagur, mars 30
Ástin er barnasjúkdómur á við bóluna.
Nokkrir deyja úr henni,
einhverjir breytast algerlega í skapi,
aðrir bera ör eftir hana alla ævi,
en á sumum verður ekki séð að þeir hafi sýkst.
Æskan er mistök,
fullorðinsárin þrældómur
og ellin reiði.
Sumir kenna áhyggjum sínum að synda
í stað þess að drekkja þeim.
Að tala illa um aðra
er óheiðarleg aðferð til að lofa okkur sjálf.
+ Sigrun bloggaði kl. 16:43 +
~~~~~~*~~~~~~
Þá er það ákveðið!
Vorið 2006 þegar ég hef klárað þennan helvítis skóla , munum ég og Eva halda á vit ævintýranna!!
Okkur hefur verið gefin slík fegurð í vöggugjöf að við verðum að leyfa öðrum að njóta hennar.
Ferðinni verður heitið til New York þar sem við munum gerast frægar fyrirsætur í heimi tískunnar!!
Eftir nokkur farsæl ár í þeim bransa, auk þess að hafa lokið námi í einhverjum frægum lista/tísku/leiklistarskóla , þá munum við halda til Hollywood þar sem frægð kvikmyndanna bíður okkar........
Við höfum rætt mikið um þetta og við bara getum ekki lengur hunsað þá stóru staðreynd að okkur var ætlað stórt hlutverk í lífinu, eitthvað meira en að lifa á litla Íslandi.
Okkur var heldur ekki ætlað að lyfta litla fingri til að komast eitthvað í lífinu, svo að þegar til USA er komið munum við giftast forríkum aðalsmönnum sem gera allt fyrir okkur , eða frekar sagt peningarnir þeirra munu gera allt fyrir okkur!!
Come to think of it .... þetta er bara ekkert svo vitlaus hugmynd hjá okkur ;)
Eva >
< Sigrún
+ Sigrun bloggaði kl. 14:26 +
~~~~~~*~~~~~~
mánudagur, mars 29
Já það eru sko nýir og betri tímar framundan :)
Ég er farin að mæta í skólann aftur og er voðalega stolt af því:) Þó ég hafi samt sem áður en litið í bók alla helgina, þá er hugsunarfarið allavega breytt og orðið jákvæðara svo það er gott :)
Ég skellti mér í pulsuferð með Agga í gær og í þeirri merku ferð komst ég að því að Agnar er að vinna merkilegt starf.
Hann er að gefa tíma sinn til góðs málstaðar... eða eins og Agnar orðar það : ,,Á meðan aðrir fara til Rúmeníu og byggja kofa og hjálpa þeim fátæku, þá get ég sagt : Ég hjálpaði Sigrúnu á erfiðum árum ævi hennar."
En já, í kvöld er einn af betri sjónvarpsþáttunum sem íslenskt sjónvarp býður uppá, O.C á Skjá1 :):):)
Svoldið dramalegir þættir en engu að síður mikil skemmtun:) Þeir ná þó ekki að toppa daddara PARADISE HOTEL!!!!!:)
Annars sá ég frekar góða mynd um helgina, við systurnar leigðum okkur
Thirteen og ég varð ekki fyrir vonbrigðum þar. Mynd með miklum skilaboðum til unglinganna í dag :)
En núna ætla ég að fara að vinna að ritgerð sem ég skila á morgun, allt að gerast ;)
bleble
+ Sigrun bloggaði kl. 18:18 +
~~~~~~*~~~~~~
fimmtudagur, mars 25
Lífið gæti ekki verið betra, skólalega séð allavega hehe :)
Ég fór í skólann í dag, síðustu tvo tímana :) - allavega ég náði að tala við kennarana mína í heimspeki og landafræði, og viti menn?.. ég er búin að redda þessu :)
-Semsagt í
Landafræðinni mun ég taka hlutapróf sem verður næsta fimmtudag (verð að fá 9-10) , svo á ég að gera ritgerð um eitthvað Evrópuríki sem ég vel sjálf og þarf að skila fyrir páskafrí, og svo er það bara lokaprófið ... þetta þrennt metur hann semsagt og gefur mér lokaeinkunn fyrir.
-Í
Heimspeki mun kennarinn meta verkefnið sem ég gerði í tímanum í dag, og verkefnin sem á eftir að gera í tímunum, og svo ritgerð sem á að skila 22.apríl og á ég þar að velja mér einhvern heimspeking og skrifa 2000 orða ritgerð um hann. Og þar sem er ekkert lokapróf í þessum áfanga þá mun hún bara meta verkefnin sem eftir eru og ritgerðina :)
Svo að núna er bara að brillera á þessu og ná öllu saman :):):)
En eftir skóla í dag fór ég til Írisar systur og við sátum bara og spjölluðum :)
Fór svo heim um kvöldmatarleyti og pabbi keypti hamborgara, ég tók meiraðsegja til í herberginu mínu, skápnum og skipti á rúminu mínu áður en ég borðaði.... OHHHHHH viljiði spá hvað ég er dugleg :)
Svo núna er ég að nördast í tölvunni og reyna að ákveða hvaða Evrópuríki mig langar að skrifa um, allar tillögur eru vel þegnar, ég verð að klára ritgerðina um helgina svo ég hafi alla vikuna til að læra undir hlutaprófið:)
Og Agnar Árelíus, þú þarft ekki að örvænta, ég mun ekki væla um hjálp þína, ég bý til brilliant ritgerðir svo þetta ætti ekki að verða vandamál, sérstaklega ef við lítum á þá staðreynd að þetta er 2bls. ritgerð:)
Svo er það bara Bachelor kl.22:00 en eg ætla að vera búin að fara í ljós áður:)
Svo að nuna ætla ég að hætta að bulla áfram þó að ég viti að ég gæti alveg haldið endalaust áfram hérna:)
Ble Ble
PS: GUÐ MINN GÓÐUR - ég var ekki búin að segja ykkur hvað ég varð geðveik áðan.
Ok, í mínum þrifum á herberginu hjá mér stóð sko aldeilis ekki til að fara að taka skápinn í gegn, en anskotinn hafi það, haldið þið ekki að hann faðir minn hafi verið búinn að rústa öllu sem hægt var að kalla skipulag í skápnum..... ég var með þannig skipulag að síðerma bolir voru í einni röð, stutterma í annarri o.sv.frv. - NEIIIIII er minn þá ekki búinn að vera að setja það sem kom hrein úr þvottinum, inní skáp og það allt í eitthvað rugl... ÉG SVER mig langaði að leggjast í gólfið og fara að gráta... í einhverri klikkun tók ég ALLA bolina mína og henti á rúmið og ruslaði þeim eitthvað til þangað til ég róaði mig niður og byrjaði að brjóta þá ALLA saman aftur og raðaði þeim inní skáp... úfff!!!
Þeir sem lifa ekki við svona , vita ekki hve erfitt þetta er .....
Það vita það kanski ekki margir en pabbi minn er þrifóður.. ef herbergið mitt er ekki í röð og reglu þá fæ ég ekki að vera í friði fyrr en ég geri eitthvað í málinu, og þá er hann voða stoltur af mér ... -
Íris stóra systir mín er því miður búin að erfa þetta frá pabba, sorglegt alveg hreint. Hún getur ekki setið róleg, hún er eiginlega bara verri en pabbi.
Eins og í dag var hún á fullu að taka til meðan ég var í heimsókn því hún átti von á vinkonum sínum um kvöldið...
ég er ekki að tala um að hún hafi bara verið að pússa smá borðin eða eitthvað... hún BÓKSTAFLEGA skreið í gólfinu með pappír og þreif .. samt var kallinn hennar nýbúinn að ryksuga.. svo eftir að hún var búin að skríða i gólfinu og pússa það allt, þá var hún samt ekki búin... þá moppaði hún yfir allt ..... SICK!!!!
+ Sigrun bloggaði kl. 21:21 +
~~~~~~*~~~~~~
miðvikudagur, mars 24
DADDARA ég er komin aftur :):)
Já ég er ekki búin að vera að gera neitt öfga mikið síðustu daga svo það er frá litlu að segja.
ENNNNNNNNN
Ég gleymdi að segja frá því að eftir NASA - vakt á föstudag þá fórum ég og Beta á DeViToS og fengum okkur GEGGJAÐ GÓÐA pizzu.. anyhow - svo fer ég til að ná mér í glas og þá byrjar gaurinn í afgreiðslunni að segja mér hvað vinkona mín sé sæt og að ég ætti að segja henni það ... ég alveg : RIGHT!! - Allavega svo fylgist hann með mér,greinilega til að tékka hvort ég myndi segja henni, geðveikt creapy - svo átti ég eftir að segja henni þetta þegar hún fer og nær sér í eitthvað, en gaurinn er ekkert að hika við hlutina og byrjar að tjá henni hrifningu sína ... hehe :) frekar fyndið!! Beta getur núna bara farið að stunda Devitos og sleikt gaurana upp, e.t.v. mætt í flegnum bol og "óvart" misst veskið í gólfið og beygt sig eftir því og flassað þá í leiðinni.... - svona uppá fría pizzu þið skiljið :):)
Mig langar hinsvegar að tjá mig með eitt sem ég er alls ekki ánægð með og það er hvað hefur gerst fyrir stelpukvöld NASA!!
Þar sem að strákarnir vilja vera með í þessu dæmi okkar , þá hefur bara verið hætt við að hafa stelpukvöldin ... I dont like it one bit...
Þá er þetta bara orðið að staffa-djammi , en við vorum að tala um að hafa aukalega við staffa-djömm einhver stelpukvöld , Sigrún ekki skilja alveg hmm?.,,.,.,:/
En alls ekki misskilja mig, ég vil hafa staffa-djamm , en ég vil líka að það séu stelpukvöld!
Hvað er hægt að segja meira.. hmm.. já ég var að koma úr ljósum.. ég hef ákveðið að fara í einhverja ljósatíma til að ná einhverjum lit því mér finnst ég vera orðin svo hvít, verð að laga það.
Já og eitt annað sem vekur mikla tilhlökkun - eins og glöggir vita kannski að þá hef ég ekkert verið að mæta neitt æðislega í skólann að undanförnu og þar af leiðandi misst af einhverjum skyndiprófum og rugli, en ég fékk þær góðu fréttir í gær frá vinkonu minni henni Anítu (með mér í FB og vann með mér á PizzaHut.. vinnur núna með Sirrý) að í 15.viku verður hægt að fá að taka öll þau próf sem maður hefur ekki tekið, og þannig hreinsað önnina alveg til.. BRILLIANT!!!
Svo að ég get þá vonandi tekið þetta með stæl :)
En núna er ég að fara að lúlla svo ég geti ábyggilega vaknað í fyrramálið og nennt að fara í skólann:)
PS:
Hér er svona smá sem ég og Aggi vorum að leika okkur áðan, ég bjó til textann og hann bætti skáletruðu orðunum inní! ENJOY!!! ;);)
Ég vinn á
bifreiðinni NASA.
Mér finnst það bæði
viðurstyggilegt en jafnframt
ólýsanlegt.
Starfsfólkið þar er
yfirgengilegt en ekkert svo rosalega
feitt.
Ef ég fengi að velja myndi ég vinna sem
götusópari þar sem ég gæti
skelfst og borðað
reyktar villigæsabringur allan daginn.
+ Sigrun bloggaði kl. 23:46 +
~~~~~~*~~~~~~
þriðjudagur, mars 23
Bones sinking like stones,
All that we've fought for,
Homes, places we've grown,
All of us are done for.
And we live in a beautiful world,
Yeah we do, yeah we do,
We live in a beautiful world.
Oh, all that I know,
There's nothing here to run from,
'Cos yeah, everybody here's got somebody to lean on.
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
+ Sigrun bloggaði kl. 00:31 +
~~~~~~*~~~~~~
mánudagur, mars 22
Úff..ég er ekki búin að skrifa síðan á fimmtudaginn.... hvurslags eillega er þetta?? hmm!!
En jæja, helgin var nú bara ágæt þrátt fyrir að vera vinnuhelgi.
Ég fór á NASA á
föstudag þar sem Damien Rice var að syngja .... og verð ég nú eiginlega bara að játa það að ég man bara ekkert eftir að hafa heyrt þetta nafn áður, ég þori þó ekki að fullyrða.. - allavega þá var alveg stappað af fólki og góð stemmning í húsinu ..... ég hitti Þórunni sem ég hafði ekki séð lengi - en skamm skamm þú komst ekki einu sinni og sagðir bæ við mig þegar þú fórst..... ekkert prik í hattinn þar Þórunn mín ! :)
En miðað við alla geðveikina af fólki sem var á tónleikunum, þá var fólkið fljótt að hverfa þegar dæmið var búið, svo að ég var ekkert búin svo seint.
En það gerðist sorglegur atburður.... ég fór í nýju flottu stígvélunum mínum í vinnuna og viti menn... Sigrún dropaði vatni á þau þannig það komu litlir blettir... EEEEEEEN Inga gladdi mig mjög þegar hún sagði að það væri hægt að pússa blettina úr:)
Og það nýjasta að frétta af stígvélunum er að þau eru við góða heilsu, pabbi spreyaði sílikoni á þau :)
Fór að vinna í Topshop á
laugardag, sem var engin gleði get ég sagt ykkur ... ónefndir aðilar sem eru ráðnir í yfirmannastöður á þessum blessaða vinnustað eru gjörsamlega að tapa sér í smámunasemi og og og og ... ég finn ekki einu sinni nógu gott orð til að lýsa þessu ástandi sem ríkir þarna yfir - allavega er þetta alveg stórkostlega fáránlegt!!!
Vonum bara að ónefnd yfirmanneskja sem ég er að lýsa hér og var að vinna umræddan dag, lesi þetta ekki .... voða litlar líkur á því en ef svo óheppilega vill til , þá máttu taka þetta til þín .. öll gagnrýni er góð og hægt að nota til að bæta sig!!
Kl. 22:30 var ég svo heppin að fara að vinna á NASA og var ekki ómerkilegri hljómsveit en sjálfir STUÐMENN að spila... alveg nóg af fólki.... en GUÐ MINN GÓÐUR - ég var að DEYJAAAAAAAAAA úr kulda gjörsamlega...... ái það var svo vont.
Mér leiddist ekkert smá mikið, svo það kætti mjög litla hjartað mitt þegar Eva kom að heimsækja mig :):) Takk dúllan mín:)
En hún var samt ekkert lengi.. en samt gott að hún kom.
Svo voru Beta og Diljá að djamma .... og til að koma því að Beta - hárið á þér er geggjað!!! -
Það var opið aðeins lengur en á föstudag svo ég fór í rúmið kl.06:30 ...
- Ástæða: Þegar ég kom heim, var ég enn skjálfandi úr kulda og lét renna í bað og lá þar í móki þangað til ég náði sæmilegum líkamshita á ný, .. klæddi mig þar á eftir í sætu náttfötin mín og fór svo og fékk mér samloku og las Morgunblaðið :)
Á
sunnudegi átti ég að fara að vinna í Topshop kl.14:00 en vegna mikillar þreytu og slappleika ákvað ég að tilkynna veikindi sem og ég gerði ..... og sunnudagurinn var sko vel nýttur - ég vaknaði þarna fyrst um 12 og fékk mér að borða .. fór svo aftur uppi rúm og var eiginlega þar alveg til 5 ... vá ekkert smá þægilegt,ég hef ekki gert það eftir vakt á NASA síðan einhvern tímann síðasta sumar.
Um daginn talaði ég við Agga, sem ætlaði að vera svo góður að hjálpa mér með afganginn af sálfræðiverkefninu sem ég þarf að skila á morgun. Ég fór því til hans um 22:00 og hann kom bara með fartölvuna út í bíl og við vorum að læra - eða kannski væri réttara að segja að hann lærði..en hann fær þó ekki allan heiðurinn því ég var nú dugleg að koma með gáfulegar setningar og orð svona inn á milli :)
Þegar "við" vorum búin að læra, keyrðum við á Devitos og ég fór inn og keypti handa Agga SPRITE og mér pizzu&kók og við borðuðum og drukkum í góðu yfirlæti , þar til ég keyrði hann heim að lokum ...!!
Dagurinn í
dag : Ég var svo dugleg að mæta í skólann, -
svo er ég núna að fara að gera verkefnið flott og skutla því svo á diskettu til pabba til að prenta út, því að týpískt, prentaradruslan hérna heima er í rugli, svarti liturinn í prentarahylkinu er búinn... ARRRRRRRRGGG!!!
En ég var ekki búin að segja ykkur að ég og Aggi vorum eitthvað að steypa, þegar við vorum að gera verkefnið og gerðum þennan skemmtilega texta sem er í raun ekkert smá mikið rugl :) Veit samt ekki hvort þið munuð hlæja eins mikið að honum og við gerðum :) :)
En semsagt verkefnið er í raun um skoðanakönnun sem ég bjó til, og tilgátan var : Konur eru verri ökumenn en karlar.
Og spurningin sem við vorum að svara í einhverju bulli var eitthvað með af hverju eitthvað blabla...ég man það ekki.. !!
Here it goes :
Hvað er hægt að gera til að skapa meira öryggi í í dýpstu hugarfylgnsum þeirra, djúpt í undirmeðvitundinni leynist sterk kona sem veit að hún getur keyrt líkt og frár gæðingur er skeiðar um iðagræn túnin í ósnortinni náttúru vorri. Erfitt er að svara spurningu á við þessa, en ennþá erfiðara þykir að meðhöndla hið óþekkta afl tímans, líkt og fallandi maður í myrkri dýfissu sem tekur aldrei enda.
Svo vorum við líka að leika okkur (mín hugmynd) að gera þannig að Aggi bjó til texta og sagði mér síðan að segja annaðhvort nafnorð,lýsingarorð,sagnorð eða staðsetningu eða atburð, og fyllti svo inn í textann. Skáletruðu orðin eru þau sem ég svaraði :
Maður var
kattarlegur á gangi. Hann var staddur á miðjum
Austurvelli þar sem af
kindum er nóg. Skyndilega upphófst
flugeldasýning og endaði það þannig að datt inn í
pulsupartý þangað til að hann
opnaðist. Hver hefði getað ímyndað sér þessi hörmulegu örlög
móðurinnar? Hann gersamlega
talaði líkt og við
opnun kattasýningarinnar á Selfossi, þar sem líf hans er endanlega í rúst.
En núna er ég að spá í að drífa mig að klára að gera verkefnið flott, því að eftir að ég hef skutlaði því til pabba þá ætla ég uppá Þjóðarbókhlöðu að læra undir sálfræðipróf :) Nýir tímar og ég ætla að vera ógeðslega dugleg til að ná öllum prófum í vor!
Wish me good luck :)
Ble ble*
- - - - - -
PS:
Lög sem þið ættuð að ná :
Kingston Town (UB 40) -- Skemmtilegt gamaldags lag,þið munið eftir því--
Textinn
The day after tomorrow (Saybia)
Textinn
One in a million (Bosson)
Textinn
Your Music (Intenso Project)
The Scientist (Coldplay)
Textinn
King of Wishful Thinking (Bruce Hornsby) -- Lag úr Pretty Woman--
Textinn
Wild Horses (The Sundays)
Textinn
Well... ekki meira í bili, en tjékkið á þessum lögum!!
+ Sigrun bloggaði kl. 14:36 +
~~~~~~*~~~~~~
fimmtudagur, mars 18
Í gær fór ég á Topshop fundinn í staðinn fyrir leiksýninguna.. sem var btw ekki Rocky Horror heldur Litla Hryllingsbúðin :)
Allavega, svo keypti ég mér GEÐVEIKT FLOTTAN bol eftir að fundurinn var búinn.... :)
En Vííí ... dagurinn í dag var bara rosalega fínn :)
Ég fór til læknis kl.13:45 og svo eftir það fór ég í Sautján á Laugavegi og keypti mér þar geðveikt flottan bol (aðeins 990kr) -
fór svo uppí Topshop þar sem ég var að skipta um nr. á bolnum sem ég keypti í gær.
Svo var ég bara að koma núna heim því ég skrapp með Lilju í Kringluna til að kaupa mér stígvél - sem eru ÓGEÐSLEGA flott - svona beislituð rúskinnsstígvél....
Ég var geðveikt lengi að ákveða mig hvort ég ætti að kaupa þau, því mamma og pabbi voru búin að heilaþvo mig gjörsamlega... : Ekki kaupa þau, þú þarft ekki enn önnur stígvélin...blablablabla---
en að lokum ákvað ég að láta þau ekki stjórna mér og fór bara og keypti þau - ég veit.. ég er geðveikur rebel :) - hehe lélegt djók!
En já núna er ég að spá í að fara til Hans Inga , þarf reyndar að læra undir próf , því ÓJÁ ég fer í skólann á morgun ;) ;) ;) ;) geðveikt dugleg :)
Og JEYYYYYYY - þá get ég verið í nýju fötunum mínum :):):):)
*BlE bLe*
+ Sigrun bloggaði kl. 22:03 +
~~~~~~*~~~~~~
miðvikudagur, mars 17
ARRG ég er pirruð !!!
OKi ég er búin að vera geðveikt hooked á þættinum Paradise Hotel síðan hann byrjaði... og þá meina ég sko að það er ekki til þáttur sem ég hef misst af -
allavega svo er Lilja búin að tékka á netinu og sjá hvaða par vinnur og ég vill nottla EKKI fá að vita það, því þá er nú frekar lítill tilgangur í að horfa á þetta.....
anyhow- mig langaði eitthvað voða að kíkja svona smá og leita að þessu á netinu, ekki til að vita hver myndi vinna heldur bara svona tékka á upplýsingum um fólkið í þáttunum, - kemst inná eitthvað drasl þar sem er svona message board - oki ég komst ekki að því hver vinnur þetta .... en helvítis... ég veit hvaða strákur dettur líklegast út næst.. arrrrgggg ef ég hefði bara sleppt því að tékka á þessu - oh well !!!
En annars er ég núna bara hvað úr hverju að fara að drífa mig uppá Þjóðarbókhlöðu að vera rosa dugleg að læra (AND I MEAN IT)!!!
Svo í kvöld er einhver helvítis Top Shop fundur - eins og það sé ekki nóg að fara þangað aðra hverja helgi að vinna, heldur þarf ég að sitja á einhverjum djöfullsins fundi í þokkabót!!
Það pirrandi við þetta er það að pabbi fékk einhverja miða á general prufu á einhverju leikriti sem FG er að setja upp (Rocky Horror) - og það er nottla í kvöld þegar þessi anskotans fundur er!!!
Veit ekki hvað ég geri ,.. - svo er ég nú ekkert svo æðislega spennt fyrir að fara á þessa sýningu (fyrirgefðu pabbi:/) - veit ekki...ég hef bara aldrei verið eitthvað fyrir svona leikhúsferðir, nema þá kanski þegar ég var lítil , fékk t.d. í fyrra miða á general prufu á Grease og mér LEIDDIST!!!
En núna er ég hætt -
ble ble;)
+ Sigrun bloggaði kl. 11:03 +
~~~~~~*~~~~~~
mánudagur, mars 15
Voða BUSY dagur hjá mér í dag... eins og reyndar allir dagar .. hehe NOT;)
Allavega ég fór í afmæli til Hönnu Dóru, sem var 12 ára í dag (frænka mín).
Svo er ég búin að vera að dunda mér við að gera nýja "lookið" fyrir síðuna, sem fer bráðum að verða tilbúið... hope u´ll all like it ;)
Annars er nýtt á síðunni í Myndir - gerði aðra myndasíðu sem er með fullt af allskonar myndum og fleiri eiga eftir að koma inn :)
Vil bara minna á að þetta eru engar quality pictures flestar þeirra þannig að ekkert láta ykkur bregða:)
En núna er ég orðin obboslega þreytt svo ég ætla að fara að lúlla soldið
***Nighty Night***
+ Sigrun bloggaði kl. 03:11 +
~~~~~~*~~~~~~
laugardagur, mars 13
Ég var að skoða bloggið hennar
Diljáar og sá að hún hafði farið á einhverja síðu til að vita hvaða bíómynd hún væri líkust (eða eitthvað þannig rugl)..
Mig langaði svo að prófa líka svo að hér fyrir neðan er niðurstaðan:) :

Bring It On!
Hvaða mynd tilheyrir þú??;
+ Sigrun bloggaði kl. 21:53 +
~~~~~~*~~~~~~
Jæja ég hafði eiginlega ekkert að segja í gær svo ég var ekkert að hafa fyrir því að blogga neitt!!
En ég var, eins og margir glöggir vita, að vinna á fimmtudagskvöldið og það var bara mjög fínt.
Við vorum mörg í dyrunum svo þetta var bara gaman.... sérstaklega þegar við stelpurnar fundum uppá skemmtilegum leiðum til að leita á kvenkyns-nemendum Flensborgarskóla , hehehe það var fyndið :):)
JEYYYYY .... svo í gær fór ég að láta gera við mínar æðislegu gelneglur.... og ég er svo happy með þær nýju :):):) - svo var sett á eina nögl svona lítil mynd af fiðrildi og tveir steinar líka.. þið verðið að sjá þetta.. geðveikt flott :)
En ég er núna að DEYJA bókstaflega úr geðveikislegri þreytu...
ég er að verða alveg seriously háð þessari blessuðu tölvu og þessu helvítis bloggi mínu hér,.. passiði ykkur á þessu - þetta getur orðið að fíkn!
Ég er búin að vera að bögga sjálfa mig á þessu looki sem ég er með á síðunni minni og alltaf að reyna að gera nýtt en þetta tekur svo djöfull langan tíma að það hálfa væri sko nóg. Þess vegna var Sigrún langt fram á nótt að reyna að gera nýtt look (ARRRRRRGGGGGGG og það er ekki enn tilbúið).. en þetta fer vonandi að koma.. ;)
En núna er ég að spá í að fara í ljós ... sérstaklega þar sem ég er alltaf að heyra meira og meira hvað ljós séu holl fyrir húðina og að ef maður brennur að þá gerir það bara undur fyrir húðina...
ohhh...- núna er bara að krossa puttana, stilla andlitsljósin á hæsta og vona að ég komi geðveikt rauð út :):):)
+ Sigrun bloggaði kl. 20:34 +
~~~~~~*~~~~~~
fimmtudagur, mars 11
HAPPY HAPPY JOY JOY ***
Ég er svo geðveikt heppin að vera að fara að vinna í kvöld :) Skólaball á NASA, það bara gerist ekki betra... -
... Að fá að gefa þessum skólakrökkum vatn að drekka er bara tilfinning sem ekki er hægt að lýsa, það gefur mér tilgang í vinnunni, og bara lífinu öllu í rauninni.... það eru ekki margir sem fá að gera þetta svo ég nýt þess að vera ein af þessum fáu sem hlotnast þessi rosalegi heiður!!!
En ÞVÍ MIÐUR er ég ekki að skenkja vatni í glös í kvöld, heldur gerist ég svo merkileg að fá að vinna við að standa í dyrunum og þreifa á öllum stelpunum sem koma á ballið, í leit að ólöglegum hlutum sem ekki má taka með inná staðinn . . . gæti ég beðið um meira? nei er það..? :)
En gærdagurinn var ágætur - Agnar Árelíus var seinn á Bókhlöðu Þjóðarinnar , við höfðum mælt okkur mót kl.16:00 og ég var búin að segja honum að hann mætti ekki koma seinna en 16:15 . . . og kl.16:15 hringdi ég í hann þar sem hann var ekki kominn en hann SVARAÐI EKKI !!! Ég ákvað þar með að ég myndi bíða til 17:00 og fara svo , og seinna meir hella úr skálum reiði minnar,sem var orðin umtalsverð á þessum tímapunkti !! - En jú hann lét sjá sig kl.16:50 (og ég segi bara EINS GOTT) !!
En Aggi náði að hjálpa mér með verkefnin og ég er geðveikt þakklát..hefði ekki getað þetta ein!!
Giskum á eina slétta 10,0 í einkunn fyrir verkefnið sem ég á að skila á föstudaginn, og já eiginlega það sama fyrir verkefnið sem ég þarf að skila 23.mars :) - - úff ég er geðveikt stolt, á að skila eftir marga marga daga og ég er bara byrjuð á því, geðveikt dugleg ;)
Svo um kvöldið fór ég til Hans Inga og við vorum að kúra bara og horfa á video :)
Ég er svo nýkomin heim núna , eða ég kom eiginlega um 16 .. ég og Lilja erum að passa Gyðu Stefaníu, sem er nottla bara endalaus gleði og hamingja ..:)
Og því miður hef ég lítið við þetta að bæta svo ég segi bara BLE BLE ;)
+ Sigrun bloggaði kl. 17:18 +
~~~~~~*~~~~~~
miðvikudagur, mars 10
Gærdagurinn var BORING svo ég var ekkert að hafa fyrir því að skrifa eitthvað inn.
En í dag .. eða á eftir kl.15 þá ætla ég uppá þjóðarbókhlöðu að læra með Agga, hann ætlar að vera svo geðveikt góður að hjálpa mér með einhverja skýrslu í Sálfræði .. og ég er víst búin að lofa að tefja hann ekki eins og síðast við hans lærdóm, eins gott að standa við það..annars vill hann aldrei aftur læra með mér :/
Ég er síðan komin með svakaleg plön fyrir sumarið !!! - ÓJÁ !! - Ég ætla að vera geðveikt dugleg í ræktinni.. Eva er víst að beila svo ég hef þurft að finna nýja félaga til að fara með mér .. and I have :) - en semsagt ég ætla að vera geðveikt athletic í sumar .. fara í ræktina - skokka - OG það allra skemmtilegasta ... ég ætla að kaupa mér LÍNUSKAUTA og fara alltaf á þeim í ræktina (eða það er allavega í hausnum á mér) ... og verða bara geðveikt klár.
Ég er farin að öfunda Betu geðveikt því hún er eitthvað svo healthy... alltaf í ræktinni og svona ....
og já... ég ætla líka að fara að breyta mataræðinu.. :)
En nú er ég hætt... hef voða litlu við þetta allt að bæta ... veit ekki hvað ég geri í kvöld en vonandi verður það eitthvað skemmtilegt :)
+ Sigrun bloggaði kl. 13:19 +
~~~~~~*~~~~~~
mánudagur, mars 8
Jæja... ég hef frá voða litlu að segja.. - var nottla að passa laugardagsnóttina og fram á hádegi í gær því Halldór var sofandi.. morguninn fór því í að horfa á Bangsímon með Gyðu Stefaníu (aftur og aftur) og liggja á hálfsofandi í sófanum.. arrrg ég var svo þreytt og mig langaði svo að SOFA en..:)
Var svo bara að vinna í gær til 18:00, sem var allt í lagi fyrir utan það að ég var að deyja úr kvefi og gat ekki hnerrað allan daginn og hef örugglega litið út fyrir að hafa verið grenjandi því í hvert einasta skipti sem ég gat ekki hnerrað þá fylltist annað augað af tárum.
Svo var ég að nördast í tölvunni í gær, reyndar að laga bloggið frá því á laugardag því það kom allt út í spurningamerkjum, og VÁ það tók geðveikt langan tíma að setja "all the missing letters" inn í .. en þetta heppnaðist allt .. líka með dyggri aðstoð Evu símaraddar ;)
En já svo í dag er ég bara búin að vera í letikasti hérna heima að gera akkurat EKKERT!!!
Ég hef ákveðið að fara að taka mig á í mörgum hlutum og einn af þeim hlutum er að hætta að vera svona mikið heima.. ég er rosalega mikil svona heimamanneskja en allt er gott í hófi og ég hef ákveðið að gerast kaffihúsaplága (hóst*Eva*hóst) en ég veit ekki hvort ég hef það yfir höfuð í mér.. hmm??
En núna þarf ég að hætta.. moms er að fara að vinna í nótt og þarf að fara að sofa :)
Ble ble..
+ Sigrun bloggaði kl. 18:11 +
~~~~~~*~~~~~~
laugardagur, mars 6
Ég á svo bágt núna að ég er að deyja :( :( :( Kvef getur verið ljótur hlutur - ég er bókstaflega að DEYJA... ekkert smá erfitt að draga andann...... en ég fór til læknisins á föstudaginn (semsagt í gær) og fékk þar góðan pensilín skammt sem vonandi drepur þetta fljótlega.....-
En það var frekar fyndin þessi heimsókn til læknisins í gær, þetta er gaur sem er kannski milli svona 40-50 ef ég ætti að giska og ég hef farið til hans síðan bara ég man eftir mér eða eitthvað.
Allavega ég kem inn og tjái honum það að ég sé að fá þetta geðveikislega kvef (varla mánuður,jú reyndar, liðinn síðan ?g fékk í hálsinn síðast) og hann talar um að hann muni skrifa lyfseðil handa mér.. allavega svo er hann eitthvað að tala og ég fatta á að spurja um svoldið sem er búið að angra mig í 3 ár (ég fæ alltaf svona sár á bakvið eyrun,svona eins og exem pínkupons) .. allavega.. hann skoðar dæmið og fattar samstundis um hvað er að ræða....hehe.. - en málið er að gaurinn verður alltí einu geðveikt dramatískur.. bara sko eins og hann hafi stokkið útúr "Episode of THE BOLD AND THE BEAUTIFUL" því hann fer snögglega að glugganum og lítur út, krossleggur hendurnar og segir svo frekar alvarlegur : Það er til lyf við þessu.... Elegal (eða eitthvað álíka) ... ég vil að þú munir þetta nafn, ... Elegal ..... segðu þetta með mér , .. Elegal .... !
Ég varla vissi hvernig ég átti að mér að vera og alveg endurtók nafnið þarna svona til að hann vissi að ég hefði verið að hlusta á hann og ... úff þetta var fyndið!
En svo á meðan ég var nottla inni, þá var alveg fólk frammi að bíða .. en nei nei.. okkar maður fer að sýna mér einhverja talnaþraut og tekur sér þarna alveg dágóðan tíma í að útskýra allt við þrautina ... svaka chill í gangi :)
Ég fékk hann svo til að skrifa vottorð fyrir mig því ég hef verið svo oft veik og líka svo mikið "veik"... en í miðjum klíðum fatta ég að spurja hann : hvað segiru.. geturðu ekki skrifað vottorð uppá mígreni... - jújú ekkert mál - besti læknir í heimi segir þá : já heyrðu ég bæti bara við mígreni hérna og blablabla... - sem þýðir að núna er ég í raun með áframhaldandi vottorð, þannig að ef ég er veik þá er ég með afsökun : Ég er með mígreni!!!! MÚHAHAHAHA
Ég var svo að vinna í gær en það var ekkert svo lengi.... stimplaði mig út eitthvað yfir 02:00 ... frekar slöpp mæting og enginn að kaupa bjór af mér þannig að ég fékk að fara... Beta sæta var að djamma.. þú ert algjör rúsína;*
En svo var ég að vinna í dag og það var leiðinlegt, ég er með kvef í öðru auganu líka ,.. og svo þurfti ég svo geðveikt að hnerra en ég gat það ekki svo augun fylltust bara af tárum.. en ég lifði þetta af! - Tíminn var samt ekkert smá lengi að líða.. - en af því að þetta var svo erfiður dagur og ég var svo dugleg að þrauka hann ALLAN þá verðlaunaði ég sjálfa mig og keypti mér GJÖÐVEIKT flottan bol ... *HAPPY*HAPPY*JOY*JOY* ...
Svo í kvöld er ég ekki að vinna á NASA heldur er ég að passa sætasta krútt ú heimi, Gyðu Stefaníu-ohh ég elska hana svo mikið.. en já ég er að fara að passa hana á eftir... er að fara að leigja spólu núna þegar ég er búin að skrifa og fer svo til Halldórs og Hans Ingi ætlar svo að koma að passa með mér :):):) JEY!:)! Bara þægindi..þarf ekki að fara að vinna,bara liggja uppi sófa í þægindum :)
+ Sigrun bloggaði kl. 21:12 +
~~~~~~*~~~~~~
fimmtudagur, mars 4
Jæja núna hef ég frá nógu að segja þar sem ég skrifaði síðast á þriðjudaginn ..
en semsagt á
þriðjudaginn um 17:30 fór ég og hitti Agga á Þjóðarbókhlöðunni, þar sem til stóð að læra alveg rosalega vel... EN NEI .. því miður gerðum við stór mistök með því að setjast á borð þar sem við vorum hlið við hlið en ekki á borð þar sem annað okkar hefði setið fyrir aftan hitt.... sem þýddi að Fröken Sigrún gat ekki einbeitt sér neitt að því að læra, heldur truflaði ég Agga stanslaust við miðasendingar og eitthvað rugl... um 19:30 ákváðum við að fara á Devitos og fá okkur pizzu og Eva varð þeirrar ánægju aðnjótandi að fá að deila þeirri merkilegu stund með okkur.
Næst lá leið okkar Evu á Thorvaldsen þar sem við höfðum planað að hitta Betu .... við biðum.. og biðum.. og biðum.. en allt kom fyrir ekki.. Beta lét bara ALDREI sjá sig. Við vorum brjálaðar úr endalausri reiði og til þess að hefna okkur ákváðum við að baktala hana allt kvöldið þar sem hún hafði svikið okkur svona illa!!!- ;)
Í gær,
miðvikudag, fór ég í skólann (rosa dugleg) :) ... eftir skóla fór ég í Topshop þar sem ég ætlaði að athuga með geðveikt flottar gallabuxur..sem ég endaði á að kaupa-ég er ekkert smá ánægð með þær:) Því næst fórum ég og Kristrún á Fridays og fengum okkur gotterí að borða... rosalega nice bara :)
Ég fór svo heim en Topshop ferðum mínum þennan dag var ekki lokið, því ég fór þangað aftur með Lilju Björk því hún var að leita sér að árshátíðardressi.... ég endaði með að kaupa mér bol í Miss Selfridge og eyrnalokka og hárband í Isis... rosalega dugleg að versla, enda vita þeir sem þekkja mig að ég nærist á því að versla (eins og Eva segir)
Um kvöldið var ég að passa fyrir Halldór þar sem hann þurfti að vinna og gekk það bara eins og í sögu :) Hans Ingi kom svo með pizzu og við horfðum á
Með allt á hreinu, þar sem að ekki var hægt að horfa á neina aðra stöð en Ríkissjónvarpið og ekkert skárra hægt að finna í videospólusafninu.
Í dag,
fimmtudag, fór ég í próf í fyrsta tíma, í ensku og það gekk ógeðslega vel ;) Ef ég fæ ekki 8-10 þá er eitthvað seriously wrong... því ég gat svarað öllu og bara ég veit að ég brilleraði!!
Ég var hinsvegar BÓKSTAFLEGA að DEYJA úr kvefi.. gerði ekkert annað en að hnerra og þerra á mér nefið.. og JESÚS..- ég er með kvef í augunum líka.. ÞAÐ ER SVO ERFITT AÐ VERA ÉG!!!! :( :(
Ég kom heim eftir fyrsta tíma því ég bara meikaði ekki að vera lengur í skólanum því ég var bara með dúndrandi höfuðverk ofaná allt saman! Ég kom heim og lagði mig og þegar ég vaknaði bauðst ég til að fara í Topshop og kaupa pilsið sem Lilja var að spá í að kaupa í gær en gerði ekki.. svo kom ég heim og málaði Lilju og gerði í hárið á henni fyrir árshátíðina.. hún var algjör GELLA ... svo komu vinkonur hennar og ég málaði og gerði í hárið á einni þeirra... skutlaði þeim svo á árshátíðina !
Þegar ég kom heim fann ég geðveikt góða lykt.. ég hélt strax að mamma væri þarna búin að búa til samloku með aspas fyrir mig og ég hugsaði með mér : ææææ en góð..... - nema þegar ég lít inn í eldhús sé ég að þetta voru bara ranghugmyndir.. það var engin aspas-samloka í grillinu, bara í hausnum á mér :( .. En ég hitaði upp fisk með karrý sem var í matinn í gær og lét það bara duga......þó ég hafi nú samt verið að vonast til að fá einhvern meiriháttar góðan mat, en þetta var nú bara ágætt.
Svo að núna þegar ég skrifa er ég sífellt hnerrandi og get varla haldið augunum opnum.. bara svona smá.. og er alvarlega að íhuga að fara að sofa bráðlega.. þó ég sé ekkert geðveikislega spennt fyrir því, þar sem að það er það allra ógeðslegasta að sofna þegar maður er með brjálað kvef..- vonum bara að ég kafni ekki í svefni úr eigin vökva!!!
Well good night..!
+ Sigrun bloggaði kl. 22:07 +
~~~~~~*~~~~~~
þriðjudagur, mars 2
Now that we're here
So far away
All the struggle
We thought was in vain
All the mistakes
One life contained
They all finally start to go away
Now that we're here, so far away
And I feel like I can face the day
I can forgive
I’m not ashamed
To be the person that I am today
Textinn hérna á undan er úr laginu
So far away með Staind .... Mér persónulega finnst þessi ákveðni texti sem ég er búin að skrifa hérna MJÖG djúpur .... en Agnar lúði er á annarri skoðun.. hann telur þennan texta samansafn af asnalegum setningum sem er skeytt saman í eitthvað fáránlegt lag,,...!! (hann veit ekkert!!)
Núna vil ég biðja ykkur sem lesið þetta að segja ykkar skoðun á þessum texta sem ég skrifaði og hvað þið haldið að hann sé um...
PS: Agnar : U dont know shit!
+ Sigrun bloggaði kl. 17:59 +
~~~~~~*~~~~~~
Jú það er allt brjálað að gera núna :) eða svona .. allt að því ;)
Ég er núna á leiðinni út á Þjóðarbókhlöðu þar sem ég ætla að hitta Agga nörd og við ætlum að læra saman... ég þarf að lesa helling í Sálfræði og best að gera það þarna...
Svo um 8 leytið ætlum ég, Eva og Beta að hittast og ræða "háleynilegar aðgerðir" eins og Eva kallar það :)
En ég er þá farin...
SETNING DAGSINS :
Forget about who you thought you were, and just accept who you are !!
+ Sigrun bloggaði kl. 16:31 +
~~~~~~*~~~~~~
mánudagur, mars 1
+ Sigrun bloggaði kl. 18:09 +
~~~~~~*~~~~~~
Ég var að uppgötva aftur eitt frábært lag (sem ég hef elskað síðan ég var 13 ára) .. það er úr myndinni FEAR með Reese Witherspoon og Mark Wahlberg...
Lagið heitir Wild Horses og er með The Sundays .... og hérna er
textinn við lagið !!
Náið í þetta lag, þið sjáið ekki eftir því!! ;)
+ Sigrun bloggaði kl. 13:10 +
~~~~~~*~~~~~~